Höfundur: Heiða Lecomte Gröndal
Leiðbeinandi: Auður Björgvinsdóttir
Meðleiðbeinandi: Sigríður Ólafsdóttir
Ágrip/efni:
Ritgerðin fjallar um dyslexíu, sértækan lestrarvanda af taugafræðilegum uppruna, sem getur haft víðtæk áhrif á nám, sjálfsmynd og félagslega aðlögun barna. Í henni er alþjóðlega hugtakið dyslexía notað í stað íslensku þýðingarinnar lesblinda, þar sem hið síðarnefnda ber með sér neikvæða merkingu og gefur ranga mynd af eðli röskunarinnar.
Markmiðið er að leiðrétta útbreiddan misskilning með því að varpa ljósi á afleiðingar ranghugmynda, bæði fyrir námsframvindu og tilfinningalega líðan barna með dyslexíu. Sérstök áhersla er lögð á að skýra hugtakið og greina frá algengum mýtum sem hafa áhrif á viðhorf, greiningu og kennsluhætti innan íslensks menntakerfis. Algengasta mýtan er sú trú að börn með dyslexíu þurfi sérstakt letur eða litaðar glærur til að bæta lestrarfærni. Þessi hugmynd er svo rótgróin að hún hefur í mörgum tilfellum orðið norm, jafnvel meðal fræðimanna. Önnur algeng mýta er sú að dyslexía sé bara lestrarerfiðleiki, sem hverfur með æfingu. Þessar hugmyndir eru víðtækar en ekki studdar af rannsóknum, og geta leitt til óljósrar greiningar og ómarkvissrar kennslu.
Greint er frá mikilvægi snemmtækrar greiningar og markvissrar íhlutunar, sem byggðar eru á gagnreyndum aðferðum. Einnig er litið til þróunar undirþátta lestrar frá frumbernsku, einkenna og birtingamynda dyslexíu hjá börnum og mikilvægi þessa að greina röskunina helst strax á leikskólaaldri. Árangursrík íhlutun byggir ekki eingöngu á greiningu, heldur á kennslu sem er markvissri, stigvaxandi og einstaklingsmiðuð, skipulega uppbyggðri lestrarkennslu (e. Structured Literacy).
Með aukinni fræðslu um eðli og birtingarmynd dyslexíu, sem og undirliggjandi orsök hennar, má stuðla að réttlátari og sértækari kennslu sem mætir raunverulegum þörfum barna. Þá er lögð áhersla á að kennarar og annað fagfólk innan menntakerfisins fái viðeigandi þjálfun og þekkingu til að greina einkenni og bregðast við með árangursríkum hætti. Að lokum verður fjallað um helstu forsendur læsisþróunar hjá börnum og hvernig gagnreyndar kennsluaðferðir geta stutt við hana á áhrifaríkan hátt.