Nafn nemanda: Anton Orri Eggertsson
Námsleið: Íþrótta- og heilsufræði, MS.
Leiðbeinandi: Rúna Sif Stefánsdóttir
Sérfræðingur: Erlingur S. Jóhannsson
Ágrip: Bakgrunnur: Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt heims og hefur þátttaka stúlkna aukist verulega á undanförnum árum, bæði á Íslandi og á heimsvísu. Í skipulögðu íþróttastarfi eru börn gjarnan flokkuð eftir fæðingarári, sem getur leitt til svokallaðra fæðingardagsáhrifa (RAE). Þau felast í því að börn sem fæðast fyrr á árinu geta haft forskot í líkamlegum þroska miðað við jafnaldra sem fæddir eru síðar sama ár. Slík áhrif geta haft áhrif á frammistöðu, val í lið og áframhaldandi þátttöku í íþróttum. Þetta hefur verið rannsakað meðal drengja og eldri stúlkna, en síður hjá yngri stúlkum í íþróttum. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort fæðingardagsáhrif væru til staðar meðal tólf ára íslenskra knattspyrnustúlkna og hvort þau tengdust frammistöðu í líkamlegum prófum og getuskiptingu leikmanna. Aðferðir: Rannsóknin er þversniðsrannsókn sem er hluti af langtímarannsókn sem ber heitið Stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi (SKORA). Þátttakendur voru stúlkur fæddar árið 2012 sem stunduðu knattspyrnu hjá tíu félögum á höfuðborgarsvæðinu. Í félögunum voru 222 stúlkur skráðar, en 150 stúlkur mættu á æfingu og fengu upplýst samþykki til þátttöku. Framkvæmd voru fjögur frammistöðupróf: Yo-Yo hlaupapróf, stökkkraftspróf (CMJ), 40 metra spretthraðapróf og Illinois knattrakspróf. Þjálfarar mátu getustig leikmanna á þriggja punkta skala. Af þeim 150 stúlkum sem samþykktu þátttöku, fengu 146 getumat frá þjálfara, 138 áttu gögn úr spretthraða- og knattraksprófi og 120 áttu gögn úr stökk- og Yo-Yo prófi. Allar mælingar voru á hefðbundnum æfingatíma stúlknanna, teymi frá Háskóla Íslands sá um mælingar og gagnasöfnun. Niðurstöður: Enginn tölfræðilega marktækur munur fannst á frammistöðu eftir ársfjórðungi fæðingardags í neinu prófanna (p > 0,05). Engin marktæk tengsl fundust milli fæðingardags og getuskiptingar leikmanna og dreifing þátttakenda var svipuð milli allra ársfjórðunga. Ályktun: Niðurstöður benda til þess að fæðingardagsáhrif hafi ekki haft áhrif á líkamlega frammistöðu eða getuskiptingu í þessu úrtaki. Það styður fyrri rannsóknir sem sýna að slík áhrif eru almennt veikari hjá stúlkum en drengjum auk þess sem að aðrir þættir, eins og einstaklingsmunur og kynþroski, geti haft meiri áhrif á frammistöðu í þessum aldurshópi.