Fagið Uglur – Reynsla af samþættri kennslu í grunnskóla

Nafn nemanda: Egill Valur R. Michelsen
Námsleið: Kennsla samfélagsgreina, M.Ed. (Kjörsvið: Fimm ára kennaranám)
Leiðbeinandi: Súsanna Margrét Gestsdóttir
Sérfræðingur: Nanna Hlín Halldórsdóttir
Ágrip: Þessi rannsókn, Fagið Uglur: reynsla af samþættri kennslu í grunnskóla, fjallar um samþætta kennslu í faginu Uglur í Víkurskóla og beinist að því að varpa ljósi á reynslu kennara og fyrrverandi nemenda af slíku námsfyrirkomulagi. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig þátttakendur upplifa samþætta kennslu og hvaða áhrif hún hefur haft á kennsluhætti og námsupplifun. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við kennara og fyrrverandi nemendur sem höfðu reynslu af faginu. Gögnin voru greind með þemagreiningu með það að markmiði að draga fram sameiginleg mynstur og merkingu í frásögnum þátttakenda.
Niðurstöður benda til þess að samþætt kennsla stuðli að heildstæðari sýn á nám og skýrari tengingu milli námsgreina. Kennarar lýstu aukinni faglegri ígrundun, samvinnu og sameiginlegri ábyrgð á skipulagi náms, á meðan nemendur upplifðu aukna þátttöku, sjálfstæði og merkingarbærari tengsl við námsefni. Jafnframt komu fram áskoranir sem tengdust skipulagi kennslu, sérhæfingu kennara og tengslum við hefðbundið námsmat og prófamenningu.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar má ráða samþætt kennsla geti haft mótandi áhrif á kennsluhætti og námsmenningu með því að efla samvinnu, merkingarsköpun og virkni í námi. Rannsóknin veitir innsýn í samþætta kennslu í íslensku skólasamhengi og leggur þannig sitt af mörkum til fræðilegrar umræðu um heildstætt nám og faglegt samstarf í skólum.