Nafn nemanda: Thelma Lind Waage
Námsleið: Uppeldis- og menntunarfræði, MA
Heiti verkefnis: Frá stefnu til framkvæmdar: SAMFÓ: Ég, þú og við öll sem mögulegur farvegur fyrir félags-, tilfinninga- og siðferðisnám í íslensku skólakerfi.
Leiðbeinandi: Ingibjörg V. Kaldalóns
Ágrip/efni (drög): Á undanförnum árum hefur umræðan um farsæld og heildrænan þroska barna orðið fyrirferðarmeiri í íslenskri menntaumræðu, samhliða aukinni alþjóðlegri áherslu á félags- og tilfinninganám (e. Social and Emotional Learning). Þá hafa áhyggjur af líðan og námsárangri barna, fjölbreyttum þörfum nemenda og álagi í skólastarfi vakið spurningar um hlutverk skólans og þau stuðningsúrræði sem honum standa til boða. Í þessari meistararitgerð er sjónum beint að félags-, tilfinninga- og siðferðisnámi (e. Social, Emotional and Ethical Learning), skyldri nálgun sem bætir siðferðilegri vídd við félags- og tilfinninganám, og því hvernig innleiðing og aðlögun námsefnisins SAMFÓ: Ég, þú og við öll geti stutt við framkvæmd áherslna íslenskrar menntastefnu á þessu sviði. Ritgerðin byggir á fræðilegri og menntapólitískri greiningu þar sem íslensk menntastefna er skoðuð í ljósi fræða um félags-, tilfinninga- og siðferðisnám, menntaheimspeki og innleiðingu menntastefnu. Jafnframt eru fræðilegar og kennslufræðilegar forsendur SAMFÓ greindar og skoðað hvaða aðstæður þurfi að vera fyrir hendi svo slík nálgun geti orðið sjálfbær hluti skólastarfs. Meginniðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að félags-, tilfinninga- og siðferðisnám sé orðinn veigamikill þáttur í þeirri menntasýn sem birtist í íslenskri stefnumótun, án þess þó að skýr kennslufræðileg leið fylgi þeim markmiðum sem þar eru sett fram. Með þessari þróun hefur ábyrgðarhlutverk skóla og kennara víkkað og veruleg ábyrgð á túlkun og þýðingu almennra stefnumarkmiða yfir í daglegt skólastarf færst til þeirra sem starfa innan skólanna. Megináskorunin felst því í að skapa faglegar, kennslufræðilegar og kerfislægar forsendur fyrir framkvæmd þeirra. Greiningin bendir til þess að SAMFÓ geti gegnt mikilvægu hlutverki sem kennslufræðilegur farvegur milli stefnu og framkvæmdar með því að færa almenn markmið um félagslegan, tilfinningalegan og siðferðilegan þroska yfir í skilgreindan hugtakaramma, kennslufræðilegar aðferðir og heildræna sýn á nám. Framlag SAMFÓ felst þó ekki eingöngu í námsefninu sjálfu heldur einnig í áherslu á samkennd í námsumhverfi, víxlverkandi nám, fagleg lærdómssamfélög og þróun skólamenningar. SAMFÓ getur þannig stutt við að brúa bilið milli stefnu og framkvæmdar, en nálgunin getur ekki ein og sér leyst þær kerfislægu áskoranir sem leysa þarf svo hægt sé að tryggja farsæla innleiðingu menntastefnu. Hluti meistaraverkefnisins er jafnframt þýðing á SEE Learning Playbook, sem á íslensku ber heitið SAMFÓ: Ég, þú og við öll – Verkefnabók. Þýðingarvinnan er hluti af þróun og innleiðingu SAMFÓ í íslensku skólasamhengi.