Nafn nemanda: Kristjana Björnsdóttir
Námsleið: Menntun allra og sérkennslufræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Svava Pétursdóttir
Sérfræðingur: Edda Óskarsdóttir
Ágrip:Gervigreind byggð á stórum mállíkönum hefur verið gríðarlega áberandi í öllu samfélaginu á síðustu árum. Markmið þessarar rannsóknar er að komast að því hvernig slík gervigreind getur hjálpað kennurum í menntun allra og sérkennslu í sínum störfum. Í þessari rannsókn sem var starfendarannsókn, þar sem höfundur sjálfur og fjórir aðrir sérkennarar, prófuðu að notfæra sér gervigreind í störfum sínum yfir tveggja mánaða prófunartímabil. Tekin voru einstaklingsviðtöl við þátttakendurna fyrir og eftir tímabilið, og hópviðtal við alla þátttakendurna á miðju tímabilinu. Niðurstöður voru túlkaðar með þemagreiningu.
Helstu niðurstöður eru annars vegar að gervigreind getur sannarlega veitt sérkennurum öfluga aðstoð við að vinna störf sem eru bæði orku- og tímafrek, sérstaklega við að einstaklingsmiða námsefni út frá áhugasviðum nemenda, gera einstaklingskennsluáætlanir, og túlka niðurstöður greininga og prófa. Hins vegar gefa niðurstöður til kynna að þekking kennara á gervigreind og þeim möguleikum sem henni fylgja sé ekki eins og best verður á kosið. Mörg mismunandi gervigreindarverkfæri, sérhæfð í afmörkuðum verkefnum, standa nú til boða og það er erfitt að fylgja hinni hröðu þróun á þessu sviði. Þó nokkrar takmarkanir eru á þeim verkfærum sem í boði eru. Flest þeirra bjóða aðeins takmarkaða virkni án áskriftar og mörg skortir sérhæfingu í sumum þeirra kennsluaðferða sem notast er við hér á landi. Þá fylgja ýmsar áhættur innleiðingu og notkun gervigreindar. Má þar nefna að svörin eru oft óútreiknanleg og gæðin eru misjöfn. Auk þess þarf að huga vel að sjónarmiðum tengdum persónuvernd. Fagmennska kennara skiptir því höfuðmáli þegar unnið er með gervigreind. Mikilvægt er að kennarar og skólastjórnendur fái fræðslu um möguleika gervigreindar og þær áhættur sem fylgja notkun hennar.