Nafn nemanda: Erla Rán Kjartansdóttir
Námsleið: Menntun allra og stoðþjónusta, M.Ed.
Leiðbeinendur: Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Kristján Ketill Stefánsson
Ágrip: Snemmtæk og markviss kennsla í undirstöðuþáttum lestrar skiptir sköpum fyrir áframhaldandi lestrarnám. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif markvissrar hljóðaaðferðar- og félagakennslu með PALS (e. Peer-Assisted Learning Strategies) nánar tiltekið grunnþáttum PALS (G-PALS; e. First Grade-Reading PALS), á þróun lestrarfærni nemenda í 1. bekk grunnskóla. Megindlegu hálftilraunasniði var beitt þar sem tilraunahópur sem fékk lestrarkennslu með G-PALS var borinn saman við samanburðarhóp úr fyrri rannsókn sem fékk hefðbundna lestrarkennslu. Fjórir lykilþættir lestrar voru metnir við upphaf og lok inngrips: stafahljóðafimi, umskráningarfimi, sjónorðafimi og lesfimi. Niðurstöður sýndu að báðir hópar (N = 289) bættu sig marktækt í öllum þáttum yfir rannsóknartímabilið. Marktæk samvirkni kom fram milli hópa og tíma á öllum mældum þáttum þar sem G-PALS hópurinn sýndi meiri framfarir en samanburðarhópurinn. Áhrif G-PALS á stafahljóðafimi voru mjög mikil (d = 1,42), áhrif á umskráningarfimi og sjónorðafimi meðalstór (d = 0,50 og d = 0,47) og áhrif á lesfimi lítil til meðalstór (d = 0,38). Niðurstöður benda til þess að markviss og kerfisbundin kennsla sem samþættir hljóðaaðferð og félagakennslu geti haft jákvæð og mælanleg áhrif á þróun grunnþátta lestrarnáms við upphaf skólagöngu. Aðferðin virðist því gagnleg við almenna lestrarkennslu í fjölbreyttum nemendahópi, styðja við inngildandi skólastarf og jöfn tækifæri til náms.