Nafn nemanda: Geir Hólmarsson
Námsleið: Uppeldis- og menntunarfræði (Fræðslustarf og mannauðsþróun ), MA
Leiðbeinendur: Hróbjartur Árnason og Tryggvi Brian Thayer
Ágrip: Markmið ritgerðarinnar er að þróa og rökstyðja hugtakalíkan af sköpun sem ferli, sett fram sem Sköpunarhringrásin, þar sem sköpun er skilin sem sívirk hreyfing í samspili líkama, skynjunar, hugsunar og félagslegs umhverfis. Bakgrunnur verkefnisins er sá að ríkjandi umfjöllun um sköpun, sem leggur áherslu á hæfni, afurðir eða innri hugræna þætti, nær ekki með nægilega samfelldum hætti að skýra hvernig skapandi virkni verður til og breytist þegar athygli, tilfinningatilvik, dómgreind, hreyfing og félagsleg þátttaka eru samofin í einu ferli.
Ritgerðin er fræðilegt verk sem byggir á hugtakagreiningu, mótandi hugtakavinnu (e. conceptual engineering) og fræðilegri samþættingu. Fræðilegur grunnur hennar sækir einkum efni til vitsmunavísinda (e. cognitive science), sálfræði og heimspeki, en tengist jafnframt menntarannsóknum og umræðu um náms- og kennsluumhverfi, með sérstakri áherslu á líkamsbundna hugsun (e. embodied cognition), forspárvinnslu (e. predictive processing) og félags- og menningarlegar nálganir. Meginniðurstöður ritgerðarinnar birtast í líkaninu Sköpunarhringrásinni, sem samanstendur af sjö stigum: ímynd, hreyfingu, mótun, tjáningu, snertipunkti, viðveru og endurhreyfingu, og sjö þverlægum víddum: athygli, líkamsnæmi og frumtúlkun, ímyndunarafli, tilfinningatilvikum, dómgreind, hreyfiafli og félagslegri tengingu og miðlun. Í umræðunni verður sýnt hvernig líkanið tengir líkamsbundin ferli og félagslega þátttöku í eina röklega heild, afmarkar hvað sköpun er í þessari nálgun og setur fram framlag til hugtakaramma sem nýtist bæði til frekari fræðilegra og empírískra rannsókna og til mótunar náms- og kennsluumhverfa sem styðja skapandi virkni.