Nafn nemanda: Bjarney Gunnarsdóttir
Námsleið: Íþrótta- og heilsufræði, MS
Leiðbeinandi: Ellen Alma Tryggvadóttir
Sérfræðingur: Bergvin Gísli Guðnason
Ágrip: Heilbrigði og vellíðan eru mikilvægar forsendur lífsgæða og byggja meðal annars á líkamlegum, andlegum og félagslegum þáttum. Rannsóknir sýna að félagsleg einangrun og einmanaleiki getur haft neikvæð áhrif á heilsu og lífsgæði fólks, sérstaklega hjá ungmennum og eldra fólki. Í aðalnámskrá grunnskóla og í markmiðum heilsueflandi skóla er mælt með að skólar byggi upp virk tengsl við sitt nærsamfélag með jákvæðum samskiptum og samstarfi við einstaklinga og stofnanir í hverfinu. Markmiðið með þessu verkefni var að þróa og innleiða valáfanga fyrir nemendur á elsta stigi grunnskóla sem eykur samskipti á milli kynslóða, stuðlar að aukinni heilsueflingu og eflir félagslega vellíðan bæði ungmenna og eldra fólks sem býr á hjúkrunarheimili. Hugmyndin að áfanganum, Sameinum kynslóðir, varð til í hópaverkefni í námskeiðinu Heilbrigði og velferð við Háskóla Íslands. Áfanginn var prufukeyrður sem hluti af verkefni í námskeiðinu Færniþjálfun í heilsueflingu vorið 2024. Valáfanginn byggir á reglulegum heimsóknum nemenda í 9. og 10. bekk í Laugalækjarskóla á hjúkrunarheimilið Hrafnistu Laugarási, þar sem nemendur og íbúar taka þátt í fjölbreyttum samveru- og virknistundum. Áfanginn hefur vakið mikla lukku og verið í stöðugri þróun frá því að hugmyndin kom upp. Sameinum kynslóðir hefur verið í boði við Laugalækjarskóla frá hausti 2024. Reynsla af framkvæmd áfangans bendir til þess að samvera ungmenna og eldra fólks hafi jákvæð áhrif á líðan þátttakenda og geti stuðlað að aukinni virkni, gleði og félagslegum tengslum. Nemendur fá jafnframt tækifæri til að kynnast lífi eldra fólks og starfsemi hjúkrunarheimila, sem getur aukið skilning þeirra og samfélagsvitund. Þetta er í fyrsta sinn sem áfangi sem þessi er í boði fyrir unglingadeild grunnskóla. Vegna velgengni áfangans var ákveðið að þróa kennsluleiðbeiningar til að auðvelda öðrum að innleiða sambærilegt samstarf. Verkefnið hefur bæði fræðilegt og samfélagslegt gildi með því að efla samstarf skóla við stofnanir í sínu nærsamfélagi, brúa bilið á milli kynslóða og gefa ungum og öldnum tækifæri á að koma saman í leik og starfi.