Nafn nemanda: Ásta Guðný Unnsteinsdóttir
Námsleið: Íþrótta- og heilsufræði, M.Ed.
Leiðbeinendur: Rúna Sif Stefánsdóttir og Gísli Bergvin Guðnason
Ágrip: Hreyfing er mikilvægur þáttur í þroska og heilsu unglinga og gegnir íþróttakennsla lykilhlutverki í að stuðla að heilbrigðum lífsvenjum. Á síðustu árum hefur aukin athygli beinst að styrktarþjálfun sem hluta af íþróttakennslu, þar sem hún getur haft jákvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan nemenda. Þrátt fyrir það hefur innleiðing styrktarþjálfunar í skólaumhverfi verið takmörkuð og ómarkviss, meðal annars vegna skorts á þekkingu og óvissu um hvernig best sé að standa að framkvæmd hennar. Markmið verkefnisins er að greina lykilþætti sem hafa áhrif á árangursríka og örugga innleiðingu styrktarþjálfunar í íþróttakennslu unglinga. Verkefnið byggir á fræðilegri samantekt ritrýndra heimilda þar sem fjallað er um lífeðlisfræðilega og þroskatengda þætti, kennslufræðilegar nálganir og hagnýta útfærslu í skólastarfi. Samhliða því verður útbúin handbók til þess að hjálpa íþróttakennurum að innleiða styrktarþjálfun í sína kennslu og auka líkur á að styrktarþjálfun verði markviss og öruggur hluti af kennslu sem styður við heilsu og þroska unglinga til framtíðar. Niðurstöður benda til þess að styrktarþjálfun geti haft jákvæð áhrif á vöðvastyrk, hreyfifærni, beinheilsu og andlega líðan unglinga. Jafnframt kemur fram að ákveðnir lykilþættir ráða úrslitum um öryggi og árangur, þar á meðal rétt tækni, stigvaxandi álag og einstaklingsmiðun. Með verkefninu er leitast við að draga fram hagnýta þætti sem geta nýst íþróttakennurum við skipulag og framkvæmd styrktarþjálfunar. Niðurstöðurnar benda til þess að með markvissri og faglegri nálgun sé hægt að innleiða styrktarþjálfun á öruggan og árangursríkan hátt og þannig stuðla að aukinni hreyfingu, bættri heilsu og jákvæðri upplifun unglinga af íþróttakennslu.