Nafn nemanda: Gunnar Freyr Þórarinsson
Námsleið: Íþrótta- og heilsufræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Sigrún Halldórsdóttir
Sérfræðingur: Rúna Sif Stefánsdóttir
Ágrip: Sund gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og er skyldunámsgrein í grunnskólum samkvæmt lögum og Aðalnámskrá grunnskóla. Markmið sundkennslu er meðal annars að efla sundfærni, vatnsöryggi og stuðla að jákvæðu viðhorfi til hreyfingar og heilsu. Þrátt fyrir skýra námskrá og lagalegan ramma benda rannsóknir til þess að framkvæmd sundkennslu geti verið breytileg milli skóla og að skortur sé á heildstæðu og fræðilega ígrunduðu kennsluefni sem er sérstaklega ætlað unglingastigi grunnskóla. Markmið þessa verkefnis er að þróa hagnýtt og fræðilega uppbyggt kennsluefni fyrir sundkennslu á unglingastigi (8.-10.bekk) í grunnskóla. Verkefnið byggir á greiningu fræðilegra heimilda um hreyfiþroska unglina, heilsufarslegan ávinning sunds, vatnsfærni og öryggi í vatni, auk rannsókna um hvatningu og þátttöku unglinga í íþróttakennslu. Einnig er stuðst við Aðalnámskrá grunnskóla og hæfniviðmið hennar fyrir sundkennslu. Á grundvelli þessarar greiningar var þróað kennsluefni sem inniheldur fjölbreyttar æfingar, verkefni og kennsluaðferðir sem miða að því að efla sundfærni, vatnsöryggi og jákvæða upplifun nemenda af sundkennslu. Niðurstöður verkefnisins sýna að með fræðilega ígrunduðu og skipulögðu kennsluefni er hægt að styðja kennara við að skipuleggja markvissa og fjölbreytta sundkennslu sem tekur mið af mismunandi færni, hvatningu og þörfum nemenda á unglingastigi. Helstu ályktanir eru að kennsluefni sem byggir á fræðilegum grunni og tekur mið af bæði hæfniviðmiðum námskrár og sálfélagslegum þáttum unglinga geti stuðlað að bættri sundkennslu, aukinni þátttöku nemenda og jákvæðara viðhorfi til sunds og hreyfingar til framtíðar.