Höfundur: Tinna Hrönn Óskarsdóttir
Leiðbeinandi: Svava Björg Mörk
Sérfræðingur: Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir
Ágrip/Efni:
Tilgangur þessarar rannsóknar var að bæta móttökuáætlun fyrir nýja starfsmenn í leikskóla með það að markmiði að auka starfsánægju, fagmennsku og draga úr starfsmannaveltu. Starfsmannavelta í leikskólum hefur verið viðvarandi áskorun sem getur haft neikvæð áhrif á starfsanda og faglegt starf. Rannsóknir benda til þess að markviss móttökuáætlun, með skýrri leiðsögn og stuðningi, auðveldi nýjum starfsmönnum að aðlagast starfi sínu og auki líkur á að þeir haldist lengur í starfi.
Rannsóknin var starfendarannsókn þar sem rannsakandi gegndi hlutverki faglegs leiðtoga og leiddi þróunarferlið í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk leikskólans. Rannsakandi skipulagði reglulega umræðufundi, lagði fram kveikjur fyrir ígrundun og hvatti þátttakendur til að leggja fram tillögur og ræða mögulegar úrbætur á móttökuáætluninni. Einnig ræddi hann óformlega við þátttakendur á milli funda og tók einstaklingsviðtöl til að tryggja að raddir allra kæmu fram í ferlinu. Gagna var aflað með dagbókarskrifum, vettvangsathugunum og viðtölum við leikskólastarfsmenn, bæði nýliða og reynda starfsmenn. Gögnin voru greind með þemagreiningu þar sem áhersla var lögð á reynslu þátttakenda af aðlögunarferlinu og áhrif breytinga á móttökuáætluninni. Niðurstöður sýna að fyrri móttökuáætlun var ómarkviss og ekki nægilega vel innleidd. Með innleiðingu endurbættrar áætlunar varð móttakan skipulagðari, stuðningur markvissari og nýir starfsmenn upplifðu meira öryggi og betri félagslega aðlögun. Leiðsögn frá reyndari starfsmönnum reyndist lykilatriði í aðlögunarferlinu, auk þess sem skýrar upplýsingar og regluleg endurgjöf höfðu jákvæð áhrif á starfsánægju og starfsanda. Niðurstöðurnar benda til þess að markviss móttökuáætlun geti stuðlað að betri aðlögun nýrra starfsmanna, bættri fagmennsku og auknum stöðugleika í leikskólum. Þær leggja grunn að frekari þróun móttökuferla og benda til þess að slík áætlun geti haft jákvæð áhrif á faglegt lærdómssamfélag og starfsþróun innan leikskóla.