Þegar einhver sér þig: Aðlögun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Nafn nemanda: Sandra Halldórsdóttir
Námsleið: Menntunarfræði leikskóla, M.Ed.
Leiðbeinandi: Bryndís Gunnarsdóttir
Sérfræðingur: Anna Magnea Hreinsdóttir

Ágrip: Aðlögun í leikskóla getur verið bæði krefjandi og viðkvæmt ferli fyrir alla sem að henni koma og oft sérstaklega fyrir börn og foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Það er því mikilvægt að rýna nánar í það sem á sér stað á aðlögunartímabilinu. Á meðan á aðlögun stendur yfir skapast tækifæri til að byggja upp tengsl, öryggi, traust og gagnkvæman skilning milli leikskóla, barna og foreldra. Slík tengslamyndun skiptir miklu máli fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem hún styður við vellíðan barna, auðveldar samskipti og eflir samvinnu milli heimilis og leikskóla. Þegar þessi grunnur er sterkur eiga börn auðveldara með að aðlagast nýju umhverfi, taka þátt í leik og námi, ásamt því að upplifa sig örugg í daglegu lífi leikskólans. Starfendarannsókn þessi var gerð á skólaárinu 2025-2026 og var markmiðið að auka skilning og þekkingu á aðlögun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, ásamt því að þróa eigin starfshætti. Gögnum var safnað í gegnum rannsóknardagbækur, athuganir, aðlögunarsamtöl og samtöl við rannsóknarvin. Niðurstöður benda til þess að samvinna allra sem koma að aðlögunarferlinu skiptir miklu máli fyrir tengslamyndun og þær sýna hvernig slíkt samstarf styrkir bæði sjálfsöryggi barna og starfsfólks. Einnig kom fram að tengslamyndun þróast á forsendum barnanna sjálfra, þar sem þau fá rými til að tjá sig á eigin hátt.