Um málþing meistaranema
Málþing meistaranema á Menntavísindasviði verður haldið miðvikudaginn 22. maí 2024 í Stakkahlíð
Málþingið er haldið í janúar, maí og september ár hvert, þar sem meistaranemar kynna lokaverkefni sín. Nú er komið að meistaranemum sem brautskrást í júní 2024 að kynna sín verkefni.
Dagskráin fer fram á 2. hæð í Kletti og hefst með ávarpi kl. 12:00.
Kynningar á meistaraverkefnum verða frá kl. 12:20-15.40 í stofu K-205, K-206, K-207 og K-208.
Málþingið er opið öllum. Verið velkomin.
![](https://malthingmvs.hi.is/wp-content/uploads/2024/05/absolutvision-82TpEld0_e4-unsplash-1024x683.jpg)