Viðhorf leikskólastjóra til innra mats: Áskoranir og tækifæri til umbóta

Nafn nemanda: Kolbrún Helga Margrétar Pálsdóttir
Námsleið: Menntunarfræði leikskóla, M.Ed.
Heiti verkefnis: Viðhorf leikskólastjóra til innra mats: Áskoranir og tækifæri til umbóta
Leiðbeinandi: Anna Magnea Hreinsdóttir
Sérfræðingur: Bryndís Gunnarsdóttir

Ágrip/efni (drög): Innra mat í leikskólum er skylda samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008, en rannsóknir sýna að það er oft veikasti hlekkur leikskólastarfsins. Samkvæmt lögunum felst innra mat í kerfisbundnu mati á árangri og gæðum skólastarfs, þar sem gert er ráð fyrir virkri þátttöku starfsfólks, barna og foreldra eftir því sem við á (lög um leikskóla nr. 90/2008). Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða áskoranir og tækifæri leikskólastjórnendur sjá í tengslum við innra mat og nýtingu þess til umbóta. Rannsóknin er eigindleg og byggð á hálfopnum einstaklingsviðtölum við sex leikskólastjóra víðs vegar að af landinu. Við greiningu gagnanna var notast við þemagreiningu í anda Braun og Clarke. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að leikskólastjórnendur líta almennt á innra mat sem tæki til faglegrar þróunar og umbóta fremur en formlega skyldu. Tímaskortur og skortur á fagmenntuðu starfsfólki reyndust helstu áskoranirnar, sem er í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna. Jafnframt benda gögnin til þess að tungumál og framsetning matsins hafi áhrif á þátttöku starfsfólks, og að stjórnendur sem fella matið inn í daglegt starf án formlegrar orðræðu nái oft fram betri þátttöku. Niðurstöðurnar benda til þess að innra mat geti leitt til  umbóta þegar stjórnendur skapa meðvitað rými fyrir faglega ígrundun og samvinnu. Jafnframt undirstrika þær að ábyrgð á gæðum innra mats hvílir ekki einungis á einstökum leikskólum heldur einnig á sveitarfélögum og fræðsluyfirvöldum. Lagt er til að í síðari rannsóknum á efninu verði áhersla lögð á sjónarmið leikskólakennara, með það að markmiði að fá heildstæðari mynd af innra mati í leikskólastarfi.