Nafn nemanda: Gillian Alise Pokalo
Námsleið: Kennsla list- og verkgreina, M.Ed. (Kjörsvið: Sjónlistir: Myndmennt að loknu BA/BS prófi)
Leiðbeinendur: Hanna Ólafsdóttir og Ásthildur Björg Jónsdóttir
Ágrip/efni: Viðfangsefni þessa M.Ed.verkefnis er þróun og innleiðing einstaklingsmiðaðrar kennslunálgunar í sjónlistum í grunnskóla, með áherslu á menningarnæma kennslu. Markmiðið er að kanna hvernig slík nálgun getur stutt fjölbreyttan hóp nemenda við að þróa sjálfstæða skapandi iðkun, gagnrýna hugsun og listræna sjálfsmynd.
Verkefnið byggir á starfendarannsókn höfundar og byggir á yfir tvegga áratuga reynslu af sjónlistakennslu bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi.
Fræðilegi rammi verkefnisins byggir á greiningu á einstaklingsmiðuðu og persónumiðuðu námi, menningarnæmri kennslu og sjónlista sem ígrunduðu og ferlimiðuðu námi. Gögnin samanstanda af listaverkum nemenda, sjálfsígrundun þeirra og samræðum sem eiga sér stað í gegnum kennslu- og námsferlið. Greiningin beinist að því hvernig kennsluaðferðin endurspeglast í námsskipulagi, vali á verkefnum og kennslufræðilegri leiðsögn og hvernig hún styður nemendur með fjölbreyttan bakgrunn og námsþarfir.
Lokaafurð verkefnisins er skólanámskrá í sjónlistum fyrir 2.–10. bekk ásamt vefsíðu sem inniheldur hagnýt og aðgengileg kennslugögn. Verkefnið leggur til bæði fræðilegt og hagnýtt framlag til sjónlistakennslu með því að þróa líkan fyrir myndmenntastofur án aðgreiningar þar sem allir nemendur fá stuðning við innihaldsríka sköpunarvinnu.