Nafn nemanda: Regína Márusdóttir
Námsleið: Kennsla list- og verkgreina, M.Ed. (Kjörsvið: Sjónlistir: Myndmennt að loknu BA/BS prófi)
Leiðbeinendur: Hanna Ólafsdóttir og Hanna Margrét Einarsdóttir
Ágrip: Ritgerð þessi fjallar um hvernig innsýn í sköpunarferli starfandi listamanna getur nýst sem grundvöllur fyrir þróun kennsluhátta í myndlist í grunnskólum. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að greina hvernig listamenn lýsa eigin skapandi ferli og hins vegar að kanna hvernig slík þekking getur nýst til að þróa ferlismiðaða kennslu sem styður við sjálfstæði, skapandi hugsun og fagurfræðilega reynslu nemenda. Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun og starfendamiðaðri ígrundun. Gagnaöflun fól í sér hálfopin viðtöl við starfandi listamenn, ígrundun á eigin kennslu, þróun kennsluverkefna og notkun skissubókar sem verkfæris í skapandi vinnu. Gögnin voru greind með þemagreiningu. Niðurstöður benda til þess að sköpunarferli listamanna einkennist af ólínulegri rannsóknarvinnu þar sem óvissa, tilraunir, ígrundun og samspil hugmynda og efnis gegna lykilhlutverki. Í frásögnum listamannanna birtist sköpun sem gagnvirkt ferli þar sem hugmyndir þróast í samtali við efni, rými og persónulega reynslu. Þegar slík ferli eru gerð sýnileg í kennslu skapast rými fyrir nemendur til að þróa eigin hugmyndir, takast á við óvissu og upplifa listsköpun sem rannsóknarferli fremur en framleiðslu á fyrirframákveðinni lokaafurð. Rannsóknin bendir jafnframt til þess að ferlismiðuð og listmiðuð kennsla geti stuðlað að dýpri ígrundun í starfi kennara og skapað námsumhverfi þar sem mistök og tilraunir eru eðlilegur hluti náms. Slík nálgun getur haft jákvæð áhrif á sköpun sjálfsmyndar nemenda og styrkt hlutverk listgreina sem vettvangs merkingarsköpunar, sjálfsþekkingar og gagnrýninnar hugsunar.