Nafn nemanda: Eva Björk Jónsdóttir
Námsleið: Tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed.
Leiðbeinendur: Eygló Rúnarsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir
Ágrip: Þetta meistaraprófsverkefni er starfendarannsókn sem beinist að innleiðingu forvarnarverkefnisins Building Resilience and Brighter Futures (BUILD) innan grunnskóla í Hafnarfirði. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvernig tómstunda- og félagsmálafræðingur setur mark sitt á innleiðingu þróunarverkefnis í þverfaglegu teymi innan grunnskóla. Rannsóknin fjallar um tilraunaverkefni á sviði lífsleikni sem miðar að geðrækt og sjálfsstyrkingu ungmenna á unglingastigi. Verkefnið er unnið í þverfaglegu samstarfi fagfólks þar sem tómstunda- og félagsmálafræðingur gegnir lykilhlutverki í framkvæmd og þróun þess. Leitast er við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvernig setur tómstunda- og félagsmálafræðingur mark sitt á innleiðingu þróunarverkefnis í þverfaglegu teymi innan grunnskóla? Rannsóknin er starfendarannsókn þar sem rannsakandi er jafnframt þátttakandi í ferlinu. Gagnaöflun fólst meðal annars í skráningu í rannsóknardagbók, ígrundun og þátttöku í reglulegum teymisfundum. Niðurstöður sýna að innleiðing BUILD verkefnisins var ekki línulegt ferli heldur þróaðist í samspili margra þátta, þar á meðal samstarfs fagfólks, skipulags skólastarfs og þátttöku nemenda. Hlutverk tómstunda- og félagsmálafræðings mótaðist í gegnum tengslamyndun, þátttöku og virkt samstarf, þar sem hann gegndi mikilvægu hlutverki sem brú milli formlegs og óformlegs náms. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þverfaglegs samstarfs og þess að skapa rými fyrir verkefni sem styðja við geðrækt, sjálfsvitund og seiglu ungmenna.