Nafn nemanda: Elísabet Jónsdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA
Leiðbeinendur: Ólafur Páll Jónsson og Aldís Auðbjörg Garðarsdóttir
Ágrip: Það þarf heilt þorp til að ala upp barn er setning sem við þekkjum öll og margt er til í henni. Það fylgir mikil ábyrgð að verða foreldri og eitt af mikilvægustu hlutverkum foreldra er að ala upp barn. Flestir fara í gegnum ferli til að ná sér í þekkingu þegar takast á við ný hlutverk og verkefni í störfum. Í flestum störfum hefur fólk þörf fyrir aðgengi að leiðsögn og stuðningi við verkefnin sem því eru falin. Foreldrar sem eru fyrirmyndir og miklir áhrifavaldar í lífi barna sinna eru þar engin undantekning, þeir hafa þörf fyrir leiðsögn, stuðning og hvatningu í uppeldishlutverkinu.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna áhrif og ávinning af þátttöku barna í grunnskólum Kópavogs í forvarnarnámskeiðinu „Að verða betri ég“ á þau sjálf, foreldra þeirra og um leið fjölskylduna. Rannsakandi er sjálf annar tveggja aðila sem stýra námskeiðinu og sinna foreldrafræðslu og ráðgjöf til foreldra þeirra barna sem sækja námskeið. Í ritgerð þessari er forvarnarnámskeiðinu sem börnin eru þátttakendur í, kynningarfundum með fræðslu sem foreldrar voru boðaðir á við upphaf námskeiðsins og ráðgjafarsamtali til foreldra við lok námskeiðsins lýst.
Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem gagna var aflað með því að taka viðtöl við foreldra barna sem hafa sótt námskeiðið og hafa fengið foreldra-fræðslu og ráðgjöf samfara námskeiðinu. Viðtölin voru tekin upp, afrituð og þemagreind.
Niðurstöður sýna að þátttaka barna í námskeiðinu „Að verða betri ég“ veitir börnunum sjálfum, foreldrum þeirra og fjölskyldum umtalsverðan ávinning. Foreldrar lýsa ánægju sinni með að börn þeirra hafi fengið tækifæri til að taka þátt í námskeiðinu og meta það svo að jákvæðar breytingar hafi orðið við þátttöku þeirra í því. Foreldrar telja ávinning ekki aðeins vera fyrir barnið sem sótti námskeiðið heldur einnig fyrir sig í uppeldishlutverkinu, þeir hafi styrkst til að sinna mikilvægum þáttum uppeldisins. Í heildina litið eru áhrifin margvísleg, öll jákvæð og ávinningur mikill. Með þessum niðurstöðum má ætla að tilurð og þróun námskeiðsins „Að verða betri ég“ sé mikilvæg þjónusta í þágu barna, foreldra þeirra og fjölskyldna.