Nafn nemanda: Agnes Veronika Hauksdóttir
Námsleið: Stjórnun menntastofnanna, M.Ed
Heiti verkefnis: Hæglátir matmálstímar í leikskóla: Forysta, þátttaka barna og breyttir starfshættir
Leiðbeinandi: Anna Magnea Hreinsdóttir
Sérfræðingur: Svava Björg Mörk
Markmið rannsóknarinnar var að skoða matarvenjur í anda hæglætis í leikskólum og sýna fram á hlutverk leikskólastjórnenda og leikskólakennara í innleiðingu hæglátra matmálstíma. Sérstök áhersla var lögð á að rannsaka hvernig þessi aðferð birtist í daglegu starfi, hvaða áhrif hún hefur á börn og starfsfólk og hvernig stjórnendur stuðla að þróun og framkvæmd vinnulagsins. Rannsóknin byggist á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við leikskólastjórnendur og leikskólakennara sem höfðu reynslu af hæglátum matmálstímum. Markmiðið var að fá betri innsýn í upplifun og reynslu þátttakenda af þessu vinnulagi og hvaða þættir skipta mestu máli fyrir árangursríka innleiðingu. Niðurstöðurnar sýndu að hæglátir matmálstímar skapa aukið rými fyrir samskipti, þátttöku og sjálfstæði barna. Þátttakendur nefndu að þegar dregið var úr flýti og tímapressu urðu matmálstímarnir rólegri og börnin fengju betri tækifæri til að taka virkan þátt í matartímanum. Þá kom fram að börn fengu meira svigrúm til að borða á eigin hraða, segja skoðanir sínar og taka ákvarðanir sem tengdust máltíðinni. Einnig bentu niðurstöðurnar til þess að jákvæð samskipti og nærvera starfsfólks væru mikilvægir þættir í að skapa umhverfi sem styður við hæglæti. Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika að matmálstímar séu mikilvægur liður í uppeldisstarfi leikskólans og að hæglátir matmálstímar geti stuðlað að aukinni vellíðan barna. Þá benda niðurstöðurnar til þess að þegar hæglæti var innleitt í matartíma, þá varð starfsfólk meðvitaðra um mikilvægi nærveru og þátttöku sína í matartímanum.