Nafn nemanda: Þórunn Lúðvíksdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA
Heiti verkefnis: Þörf á uppeldisfræðslu fyrir foreldra 0–2 ára barna: Sýn starfsfólks í ung- og smábarnavernd
Leiðbeinendur: Hrund Þórarins Ingudóttir og Pála Margrét Gunnarsdóttir
Ágrip/efni (drög): Foreldrahlutverkið getur verið bæði flókið og krefjandi. Á fyrstu tveimur árum í lífi barns verða miklar þroskabreytingar, jafnframt því sem tengsl þess við umönnunaraðila myndast og þróast. Á sama tíma standa foreldrar frammi fyrir fjölbreyttum áskorunum í uppeldishlutverkinu og geta þurft á fræðslu og stuðningi að halda til að efla færni sína og sjálfstraust í hlutverkinu. Ein leið til þess að varpa ljósi á þessa þörf er að skoða sýn starfsfólks í ung- og smábarnavernd sem starfar í nánum samskiptum við foreldra barna. Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast aukna þekkingu á þörf fyrir uppeldisfræðslu fyrir foreldra 0–2 ára barna svo hægt sé að styðja betur við þau í uppeldishlutverkinu. Markmið rannsóknarinnar var því annars vegar að kanna viðhorf starfsfólks í ung- og smábarnavernd á þörf fyrir uppeldisfræðslu fyrir foreldra 0–2 ára barna og hins vegar að kanna hvaða viðfangsefni þau telja að þurfi að vera í slíkri fræðslu. Markmiðið var einnig að skoða reynslu starfsfólks í ung- og smábarnavernd af því að veita foreldrum uppeldisfræðslu og stuðning í uppeldinu. Rannsóknarspurningarnar voru tvær: 1) Hvernig metur starfsfólk í ung- og smábarnavernd þörf á uppeldisfræðslu fyrir foreldra 0–2 ára barna og hvaða viðfangsefni telur starfsfólk að þurfi að vera í slíkri fræðslu? og 2) Hver er reynsla starfsfólks í ung- og smábarnavernd af að veita foreldrum stuðning og fræðslu um uppeldi? Rannsóknin var eigindleg og byggðist á hálfopnum einstaklingsviðtölum við starfsfólk ung- og smábarnaverndar. Viðtölin voru átta talsins og þátttakendur störfuðu á höfuðborgasvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Gögnin voru greind með þemagreiningu með það að markmiði að draga fram mynstur og sameiginlega reynslu þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós þrjú meginþemu sem eru eftirfarandi: 1) Áskoranir foreldra í nútímasamfélagi, 2) Þörf er á snemmtækum og aðgengilegum stuðningi í foreldrahlutverkinu og 3) Starfsfólk ung- og smábarnaverndar sinnir fræðslu og stuðningi við foreldra en skortir tíma, þekkingu og aðgengi að úrræðum.