Nafn nemanda: Sólrún Bragadóttir
Námsleið: Stjórnun menntastofnanna, M.Ed.
Heiti verkefnis: Lærdómssamfélag í leikskólum og lýðræðisleg þátttaka starfsfólks. Sjónarhorn leikskólastjóra á áhrif almennrar þátttöku leikskólastarfsfólks í ígrundun og endurmati á faglegan áhuga þeirra og þróun í starfi
Leiðbeinandi: Svava Björg Mörk
Sérfræðingur: Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir
Ágrip/efni (drög): Lærdómssamfélag leikskóla einkennist af skýrri sameiginlegri sýn sem þróast í stöðugu námsferli ígrundunar, þróunar og endurmats. Menning sem mótar lærdómssamfélag einkennist af umhyggju, virðingu, trausti og jöfnuði. Dreifð og þjónandi forysta, lýðræði og almenn þátttaka í ákvarðanatöku og fagþróun hvers og eins eru undirstöðuþættir í sterku lærdómssamfélagi, enda litið svo á að hæfni einstaklinganna styrki samfélagið. Markmið rannsóknarinnar var að rýna í stöðu íslenskra leikskóla sem lærdómssamfélags og hvernig leikskólastjórar efla og styðja við lærdómssamfélag skóla sinna. Einkum var litið til þess hvaða stjórnunarhætti leikskólastjórar tileinka sér og hvort og þá hvernig jöfnuður og lýðræði birtast í hvatningu til almennrar þátttöku starfsfólks í ígrundun og endurmati. Rannsóknin var eigindleg, tekin voru hálfopin viðtöl við leikskólastjóra og við greiningu gagna var notuð kenningarleg þemagreining. Niðurstöður sýna að leikskólastjórar telja lærdómssamfélag kjarnast um skýra, sameiginlega framtíðarsýn, mótast í stöðugu námsferli og byggja á trausti og virðingu. Þær gefa til kynna að almenn þátttaka í ígrundun og endurmati auki fagvitund starfsfólks og starfsánægju sem stuðlar að heilbrigðari vinnustaðamenningu og sterkara lærdómssamfélagi. Leikskólastjórar telja að með þjónandi forystu, faglegri handleiðslu og umhyggju fyrir hverjum og einum sé árangursríkast að auka jöfnuð, lýðræði og almenna þátttöku í fagþróun leikskólans. Hins vegar sýndu niðurstöður að leikskólastjórar standa frammi fyrir ýmsum áskorunum sem meðal annars felast í lágu menntunarstigi starfsfólks, hlutfallslega fáum leikskólakennurum og starfsmannaveltu. Þá kom fram ákveðin togstreita milli þess að leikskólastjórar vilja gera fagmenntun hátt undir höfði en einnig að koma auga á ólíka styrkleika sem felast í fjölbreyttum starfsmannahópi, viðhalda jöfnuði og lýðræði en þó láta rödd leikskólakennara vera ríkjandi. Einnig sú togstreita að vilja deila ábyrgð, valdefla starfsfólk og mæta þörfum þeirra til að hafa áhrif og láta rödd sína heyrast, en þó ekki setja of miklar kröfur til þeirra sem ekki hafa menntun eða reynslu af leikskólastarfi.