Nafn nemanda: Oddný Helga Sigurðardóttir
Námsleið: Stjórnun menntastofnanna, M.Ed.
Heiti verkefnis: Með hug og hjarta í forystu: Tilfinningagreind og leiðtogafærni innan menntastofnana
Leiðbeinandi: Helgi Þorbjörn Svavarsson
Sérfræðingur: Svava Björg Mörk
Ágrip/efni (drög): Í menntastofnunum eru samskipti, traust og samvinna lykilþættir í daglegu starfi og því hefur aukin athygli beinst að mannlegum þáttum leiðtogafærninnar. Markmið verkefnisins var að greina hvernig fræðilegar heimildir skýra samband tilfinningagreindar og leiðtogafærni ásamt því hvaða þýðingu fræðin gefa til kynna að sambandið hafi fyrir starf leiðtoga í menntastofnunum. Leitast var við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig er samband tilfinningagreindar og leiðtogafærni skýrt í fræðilegum heimildum og hvaða þýðingu er því sambandi ætlað fyrir starf leiðtoga í menntastofnunum? Verkefnið er markviss fræðileg heimildarýni þar sem heimildir um tilfinningagreind, leiðtogafærni, skólastarf, samskipti, traust, siðferðilega forystu og starfsþróun voru bornar saman og flokkaðar eftir rannsóknarspurningum. Sérstök áhersla var lögð á kenningar Daniel Goleman, en nálgun Mayer, Salovey og Caruso var einnig nýtt til samanburðar; hún skilgreinir tilfinningagreind sem hugræna hæfni til að skynja, skilja, nýta og stjórna tilfinningum. Auk klassískra kenninga var stuðst við nýlegar yfirlits- og metagreiningar. Tilbúnar klípusögur voru notaðar sem lýsandi framsetningartæki til að gera fræðileg hugtök áþreifanleg og draga fram mögulega spennu milli persónulegrar hæfni leiðtoga og aðstæðna í skólastarfi. Þær eru hvorki rannsóknargögn né sjálfstæð staðfesting á fræðunum. Greining heimildanna bendir til almennt jákvæðs, en skilyrts og aðferðafræðilega misjafns, sambands tilfinningagreindar og leiðtogafærni. Sjálfsvitund, sjálfsstjórn, hvatning, samkennd og félagsfærni geta tengst ákvarðanatöku, samskiptum og starfsmenningu, en styrkur sambandsins ræðst meðal annars af skilgreiningu og mælingu tilfinningagreindar, samhengi og rannsóknarsniði. Tilfinningagreind verður því ekki skilin sem einhlít skýring á árangri leiðtoga heldur sem einn þáttur í stærra samhengi fagþekkingar, siðferðilegrar ábyrgðar, skipulagslegra aðstæðna og mannlegra tengsla. Framlag verkefnisins felst í samanburði ólíkra fræðilegra nálgana og í því að setja niðurstöður heimildarýninnar í samhengi við forystu innan menntastofnana.