Á mörkum kerfa: Þverfaglegt þróunarverkefni um virkni ungmenna utan náms og vinnu

Nafn nemanda: Þórhildur Rafns Jónsdóttir
Námsleið: Tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed.
Leiðbeinendur: Oddný Sturludóttir og Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir
Ágrp: Markmið þessarar eigindlegu tilviksrannsóknar er að varpa ljósi á þá þætti sem styðja við mótun og fyrstu skref þróunarverkefnis sem miðar að því að efla virkni og farsæld jaðarsettra ungmenna á aldrinum 16–25 ára. Þróunarverkefnið er hluti af innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og byggir á einstaklingsmiðaðri og sveigjanlegri nálgun þar sem unnið er með ungmennum sem eru hvorki í námi né starfi (NEET). Rannsóknin er liður í stærra rannsóknarverkefni um innleiðingu farsældarlaganna í þremur sveitarfélögum, þverfaglegt samstarf og samsköpun þekkingar þvert á stofnanir og fagstéttir. Gögnum var safnað með eigindlegum hópviðtölum og vinnusmiðjum í samstarfi við meðlimi teymisins, sem hafa ólíkan faglegan bakgrunn. Við öflun gagna var sjónum beint að reynslu þátttakenda af fyrstu skrefum innleiðingar verkefnisins, faglegri sýn og samstarfsaðferðum við uppbyggingu þróunarverkefnis fyrir ungmenni í NEET-stöðu. Niðurstöður benda til þess að þrír þættir hafi verið mikilvægir í fyrstu skrefum þróunarverkefnisins: þverfaglegt samstarf, tengsl við nærsamfélagið og uppbygging trausts í samskiptum við ungmennin sjálf. Þá sýna niðurstöður skýrt fram á að lágþröskuldastarf með nálgun tómstundafræða virðist gegna mikilvægu hlutverki sem brú milli ungmenna og annarra kerfa samfélagsins, með áherslu á þátttöku, félagslega virkni og styrkleika ungmennanna. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig þverfaglegt samstarf teymis og tengsl við nærsamfélagið geta skapað ný tækifæri fyrir ungmenni sem standa höllum fæti gagnvart námi og atvinnu. Niðurstöðurnar geta nýst við þróun og stefnumótun úrræða fyrir ungmenni 16 ára og eldri og eru jafnframt fræðilegt framlag til umræðu um hlutverk og mikilvægi frístundaþjónustu í innleiðingu farsældarlaga.