Nafn nemanda: Melkorka Ýr Magnúsdóttir
Námsleið: Tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Árni Guðmundsson
Sérfræðingur: Geir Bjarnason
Ágrip: Þessi greinargerð fjallar um meistaraverkefni höfundar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið samanstendur af handbók sem miðar að því að efla samkennd hjá unglingum í félagsmiðstöðvum og þessari greinargerð. Markmið verkefnisins er að þróa hagnýtt og aðgengilegt efni sem starfsfólk félagsmiðstöðva getur nýtt í starfi sínu til að efla samkennd, félagsfærni og jákvæð samskipti meðal unglinga. Í verkefninu er lögð áhersla á félagsmiðstöðvar sem vettvang óformlegs náms þar sem unglingar fá tækifæri til að efla félagsfærni, rækta sjálfsmynd sína og byggja upp samskiptafærni í gegnum reynslu, þátttöku og tengsl. Handbókin inniheldur fjölbreytt verkefni og leiðir sem starfsfólk getur nýtt á einfaldan og markvissan hátt í daglegu starfi. Verkefnin eru sett fram þannig að auðvelt sé að grípa til þeirra án mikillar fyrirhafnar og laga að mismunandi hópum. Verkefnið hefur að leiðarljósi spurninguna: hvernig hægt sé að styðja við starfsfólk félagsmiðstöðva í að vinna markvisst með samkennd meðal unglinga. Í greinargerðinni er fjallað um hlutverk félagsmiðstöðva í lífi unglinga, mikilvægi samkenndar og áhrif hennar á samskipti og líðan. Þá er fjallað um óformlegt nám og mikilvægi fræðslu og þjálfunar, auk þess sem bent er á skort á efni sem styður markvissa vinnu með samkennd. Einnig er þörf fyrir slíkt efni könnuð og handbókinni lýst, uppbyggingu hennar og notagildi í starfi. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að þörf sé á markvissu og aðgengilegu stuðningsefni fyrir starfsfólk og var handbókin þróuð með það að markmiði að mæta þeirri þörf.