Að efla sig sem tilfinningalegur leiðtogi

Nafn nemanda: Oddný Helga Sigurðardóttir
Námsleið: Stjórnun menntastofnana, M.Ed.
Leiðbeinandi: Helgi Þorbjörn Svavarsson
Sérfræðingur: Svava Björg Mörk

Ágrip: Menntastofnanir eru fjölmennir vinnustaðir þar sem ólíkir einstaklingar með ólíka reynslu í bakpokanum mætast, hvort sem það eru nemendur, starfsfólk eða aðstendendur. Samskipti einkenna dagleg störf og hæfni okkar til samskipta er mismunandi. Daniel Goleman hefur lagt sitt á vogarskálarnar í þeim efnum og varpar fram mikilvægi tilfinningagreindar þegar kemur að hæfileikanum til að eiga uppbyggileg og árangursrík samskipti. Markmið rannsóknarritgerðarinnar er að kanna hvernig tilfinningagreind, sem er hæfileikinn til að skynja, meta og stjórna eigin tilfinningum ásamt því að skynja, meta og skilja tilfinningar annarra, hefur áhrif á leiðtogahæfni einstaklinga. Með því að ígrunda hugtakið tilfinningagreind og hvað liggi þar að baki er vonast til að veita innblástur sem stuðlað getur að bættri hæfni leiðtoga sem aftur eykur árangur og skapar jákvæða vinnustaðamenningu. Með ritgerðinni verður einnig skoðað hvernig væntingar og skynjun á siðferðilegri stjórnun tengjast tilfinningagreind og hvernig þessar grunnstoðir geti stuðlað að árangursríkri samvinnu, skapað traust og leitt til árangursríkra lausna. Gagnrýnin greining á tengslum þessara þátta mun veita innsýn í hvernig leiðtogastíll og menning í menntastofnunum getur verið betrumbættur í ljósi þess að efla tilfinningagreind. Rannsóknarspurningin tók til þriggja þátta: Tilfinningageindar, leiðtogafærni og starfsþróunar. „Hvernig getur tilfinningagreind verið nýtt til að efla leiðtogahæfni og starfsþróun innan menntastofnana, og hvaða áhrif hefur það samspil á siðferðilega stjórnun og vinnustaðamenningu?“. Tekin voru saman fræðileg, fyrirliggjandi gögn sem tengjast tilfinningagreind, leiðtogahlutverkinu og starfsþróun og þau skoðuð á gagnrýnan hátt. Niðurstöður leiða í ljós að skilningur á tilfinningagreind geti verið lykillinn að því að þróa öfluga leiðtoga sem eru færir um að mæta áskorunum í nútímasamfélögum með skilningi og yfirvegun.