Nafn nemanda: Ingibjörg Jóna Guðrúnardóttir Björnsdóttir
Námsleið: Tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Eygló Rúnarsdóttir
Sérfræðingur: Ingileif Ástvaldsdóttir
Ágrip: Um er að ræða eigindlega rannsókn sem beinist að stjórnendum félagsmiðstöðva barna og unglinga á höfuðborgarsvæðinu. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á sýn stjórnenda félagsmiðstöðva á starf sitt, hlutverk og ábyrgðarsvið, sem og hvernig þeir upplifa starf sitt þróast í ljósi fagþróunar á vettvangi. Tilgangurinn er að dýpka skilning á síbreytilegu starfsumhverfi þeirra og efla þekkingu á starfsemi félagsmiðstöðva á Íslandi með því að draga fram raddir reynslumikilla stjórnenda. Gagna var aflað með sex hálfopnum viðtölum (e. semi-structured interviews) við stjórnendur félagsmiðstöðva á höfuðborgarsvæðinu. Stuðst var við fyrirfram mótaðan viðtalsramma og gögnin greind með þemagreiningu í anda Braun og Clarke (2013). Niðurstöður sýna að stjórnendur upplifa sig gegna fjölbreyttum og margþættum hlutverkum þar sem stjórnsýsla, rekstur og faglegt starf með ungmennum og starfsfólki fléttast saman. Með aukinni fagþróun og breyttum kröfum hefur umfang stjórnsýsluverkefna aukist, sem hefur dregið úr tíma þeirra í beinum samskiptum við ungmennin. Þrátt fyrir það er fagleg sjálfsmynd stjórnenda áfram sterklega tengd gildum æskulýðsstarfs og tengslum við ungmennin sjálf. Niðurstöður benda jafnframt til þess að stjórnendur líti á sig sem virka þátttakendur í áframhaldandi þróun starfsins og leggi áherslu á að tryggja að starf félagsmiðstöðva taki mið af þörfum ungmenna. Rannsóknin er framlag til aukinnar þekkingar á sviði stjórnunar og æskulýðsstarfs og gefur mikilvæga innsýn í eðli stjórnendastarfsins og helstu áskoranir þess. Niðurstöður undirstrikar mikilvægi þess að styðja stjórnendur í að samræma fagstarf og stjórnsýsluskyldur í síbreytilegu starfsumhverfi.