„Að vekja Reggio Emilia“ – Reggio Emilia hugmyndafræðin endurvakin á leikskóla

Nafn nemanda: Lilja Rún Kristbjörnsdóttir
Námsleið: Leikskólakennarafræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir
Meðleiðbeinandi: Anna Gréta Guðmundsdóttir

Ágrip:Hugmyndafræði sem liggur í dvala er einskis nýt ef henni er ekki fylgt markvisst. Tilgangur þessarar rannsóknar fólst í að skoða áhrif þessa að endurvekja hugmyndir Reggio Emilia á starfshætti, námsumhverfi og leik barna í leikskóla sem kynnir sig sem skóla sem starfar í anda hugmyndafræðinnar. Einnig var markmiðið að skoða og leita leiða til að gera nám barnanna sýnilegra með skráningum og öðrum aðferðum hugmyndafræðinnar, skoða áhrif breytinganna samstarfsfólk mitt og hvernig eigið gildismat og hlutverk mitt sem leiðtogi þróaðist í þessu ferli.
Rannsóknin er starfendarannsókn þar sem ég gegndi bæði hlutverki rannsakanda og þátttakanda. Gagna var aflað með dagbókarfærslum, vettvangsathugunum, viðtölum, ljósmyndum og fræðilegum heimildum sem tengdust viðfangsefninu. Niðurstöður sýna að farsælt faglegt starf byggir á ólíkum þáttum sem þarf að flétta saman til að mynda sterkt lærdómssamfélag. Til að þessi þróun geti orðið markviss þarf að fylgja eftir þeirri hugmyndafræði sem skólinn stendur fyrir. Sömuleiðis þarf að skapast sameiginleg sýn, stuðningur og samstarf milli kennara og stjórnenda.
Í rannsóknarferlinu voru gerðar breytingar í námsumhverfi barnanna og lögð áhersla á umhverfið sem „þriðja kennarann“. Það leiddi af sér opnara rými til leiks, aukið framboð og aðgengi að opnum og verðlausum efniviði og athafnafrelsi barna. Breytingarnar virtust styðja við rannsóknar og sköpunarþörf barna og buðu upp á auknar lýðræðislegar leiðir til náms. Verkefnið vakti þróun sem styður starf í anda hugmyndafræðinnar, bætti námsumhverfi barnanna og stuðlaði að þróun lærdómssamfélags sem eykur faglega þekkingu og reynslu starfsfólks í leikskólanum. Þar þjónar Reggio Emilia hugmyndafræðin sem góður leiðarvísir til að viðhalda starfsþróun kennara. Rannsóknin hafði jafnframt hvetjandi og eflandi áhrif á fagmennsku mína og leiðtogahæfni, þar sem ég efldist í eigin starfsháttum og öðlaðist meiri trú á að hugmyndafræði gæti eflt leikskólastarfið.