Að verða betri ég – Mat foreldra grunnskólabarna á gagnsemi forvarnarnámskeiðs

Nafn nemanda: Elísabet Jónsdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA
Leiðbeinendur: Ólafur Páll Jónsson og Aldís Auðbjörg Garðarsdóttir
Ágrip: Það þarf heilt þorp til að ala upp barn er setning sem við þekkjum öll og margt er til í. Að verða foreldri er ábyrgðarhlutverk og eitt af mikilvægustu hlutverkum foreldra er að ala upp barn. Flest förum við í gegnum ferli til að ná okkur í þekkingu þegar við erum að fara að takast á við ný hlutverk og verkefni í störfum okkar. Í flestum störfum höfum við þörf fyrir aðgengi að leiðsögn og stuðningi við verkefnin sem okkur eru falin. Foreldrar sem eru fyrirmyndir og miklir áhrifavaldar í lífi barna sinna eru þar engin undantekning, þeir hafa þörf fyrir leiðsögn, stuðning og hvatningu í uppeldishlutverkinu. Markmið rannsóknar minnar er að kanna áhrif og ávinning af þátttöku barna í grunnskólum Kópavogs í forvarnarnámskeiðinu „Að verða betri ég“ á þau sjálf, foreldra þeirra og um leið fjölskylduna. Ég er sjálf annar tveggja aðila sem stýra námskeiðinu og sinni foreldrafræðslu og ráðgjöf til foreldra þeirra barna sem sækja námskeið. Í ritgerð þessari lýsi ég forvarnarnámskeiðinu sem börnin eru þátttakendur á, kynningarfundi með fræðslu sem foreldrar voru boðaðir á við upphaf námskeiðsins og ráðgjafarsamtali til foreldra við lok námskeiðsins.
Í rannsókninni notaði ég eigindlega rannsóknaraðferð þar sem ég aflaði gagna með því að taka viðtöl við foreldra barna sem hafa sótt námskeiðið og hafa fengið foreldrafræðslu og ráðgjöf samfara námskeiðinu. Viðtölin voru tekin upp, afrituð og þemagreind.
Niðurstöður sýna að þátttaka barna í námskeiðinu „Að verða betri ég“ veitir börnunum sjálfum, foreldrum þeirra og fjölskyldum umtalsverðan ávinning. Foreldrar lýsa ánægju sinni með að börn þeirra hafi fengið tækifæri til að taka þátt í námskeiðinu og meta það svo að jákvæðar breytingar hafi orðið við þátttöku þeirra í því. Foreldrar telja ávinning ekki aðeins vera fyrir barnið sem sótti námskeiðið heldur einnig fyrir sig í uppeldishlutverkinu, þeir hafi styrkst til að sinna mikilvægum þáttum uppeldisins. Í heildina litið eru áhrifin margvísleg, öll jákvæð og ávinningur mikill. Með þessum niðurstöðum er ljóst að tilurð og þróun námskeiðsins „Að verða betri ég“ er mikilvæg þjónusta í þágu barna, foreldra þeirra og fjölskyldna.