Ævintýrin í garðinum – Barnabók um sköpun, sjálfstæði og merkingarbært nám barna í hönnun og smíði

Nafn nemanda: Ella Dís Thorarensen
Námsleið: Kennsla list- og verkgreina, M.Ed. (kjörsvið: Hönnun og smíði að loknu BA/BS prófi)
Leiðbeinendur: Hanna Ólafsdóttir
Sérfræðingur: Brynhildur Þórarinsdóttir

Ágrip/efni: Verkefnið sprettur úr þeirri hugsjón að efla farsæld barna og viðhalda eðlislægri forvitni þeirra innan jafnt sem utan ramma skólakerfisins. Markmið þessa lokaverkefnis til M.Ed.-prófs er að kanna hvernig barnabók sem samþættir frásögn og verklega vinnu getur nýst sem þverfaglegt kennslutæki til að styðja við sköpun, sjálfstæði og merkingarbært nám hjá börnum í grunnskóla.
Verkefnið byggir á starfendarannsókn (e. action research) þar sem höfundur þróaði barnabókina Ævintýrin í garðinum samhliða fræðilegri ígrundun og athugunum í kennslu. Fræðilegur bakgrunnur verksins byggir meðal annars á kenningum um reynslumiðað nám, möguleikahugsun og innri áhugahvöt, auk þess sem mið er tekið af hæfniviðmiðum og áherslum aðalnámskrár grunnskóla um sköpun, sjálfbærni og læsi.
Niðurstöður benda til þess að frásagnarformið geti verið árangursrík leið til að kynna börnum verklega færni og hönnun á aðgengilegan og merkingarbæran hátt. Jafnframt er bókinni ætlað að mæta þörf fyrir fjölbreytt lesefni sem höfðar til ólíks áhuga barna. Fyrstu athuganir benda til þess að sagan veki forvitni, styðji einbeitingu og dýpki skilning barna á orðaforða og öryggisatriðum, auk þess að veita þeim innblástur til eigin sköpunar.
Einnig virtist hún hvetja til frumkvæðis og efla trú barna á eigin getu í tengslum við verklegt nám. Bókinni er ætlað að mynda brú milli skóla og heimilis með því að sýna hvernig nám í hönnun og smíði geti tengst daglegu lífi og nærumhverfi barna á merkingarbæran hátt.
Samþætt kennsluefni af þessu tagi getur nýst sem fyrirmynd að fjölbreyttum kennsluháttum sem ýta undir vaxtarhugarfar og skapandi flæði. Gildi verksins felst í nýstárlegri nálgun í smíðakennslu, þar sem bókmenntir, sköpun og hagnýtt handverk mætast til að efla sjálfsmynd og skapandi hugsun barna á eigin forsendum.