Áhrif hvatningakerfisins Beanfee Direct á bekkjarstjórnun og hegðun barna í leikskóla

Nafn nemanda: Hugrún Erna Erlingsdóttir
Námsleið: Hagnýt atferlisgreining, MS
Leiðbeinendur: Magnús Blöndahl og Helgi S. Karlsson
Ágrip: Markmið rannsóknar var að kanna áhrif stafræna hvatningarkerfisins Beanfee Direct á bekkjarstjórnun og á hegðun barna í leikskóla. Rannsóknin fór fram á elstu deild í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur voru þrír starfsmenn leikskólans sem sáu annars vegar um daglega umsjón barna og hópstjórnun. Með þessari rannsókn var leitast við að leggja mat á hvort innleiðing Beanfee Direct hefði jákvæð áhrif á bekkjarstjórnun kennara með áherslu á skýrar væntingar og reglur, jákvæða athygli og styrkingu æskilegrar hegðunar, og leiðréttingu óæskilegrar hegðunar. Auk þess var leitast við að kanna hvaða áhrif kerfið hefði á æskilega hegðun barnanna, svo sem að fara eftir fyrirmælum, fylgjast með eða taka þátt, sem og hvort inngripið teldist félagslega réttmætt og gagnlegt af þátttakendum. Á íhlutunar skeiði veittu þátttakendur umsjónahópnum sínum stafræna styrkingu í formi „bauna“ þegar æskilega hegðun kom fram í hópastarfi. Börnin gátu fylgst með framvindu hópsins á sameiginlegum skjá og unnið saman að því að ná fyrir fram skilgreindu markmiði. Íhlutun varði í rúmar 4-6 vikur fyrir hvern þátttakanda. Gæði framkvæmdar voru metin reglulega yfir tímabilið sem og samræmi matsmanna, sem var yfir viðmiðum. Hegðun kennara var mæld með viðburðaskráningu þar sem skráð var hvort kennarar sýndu markhegðun þegar tækifæri gafst eða ekki. Hegðun barnahópsins var skráð með bilskráningu til að meta hlutfall æskilegrar hegðunar í hópastarfi. Rannsóknin var framkvæmd með margföldu grunnskeiðssniði yfir þátttakendur. Niðurstöður hennar benda til þess að notkun Beanfee Direct stuðli að aukinni bekkjarstjórnun og notkun kennara á jákvæðri styrkingu og skýrum væntingum í hópastarfi. Þrátt fyrir að hlutfall æskilegrar hegðunar barnahópsins hafi verið hátt á grunnskeiði, sýndu niðurstöður einnig fram á aukningu á því hlutfalli í kjölfar inngripsins. Niðurstöðurnar gefa því til kynna að stafrænt hvatningarkerfi líkt og Beanfee Direct sem byggir á jákvæðri styrkingu og hópskilmálum geti verið gagnlegt verkfæri til að styðja við jákvæða bekkjarstjórnun og æskilega hegðun barna inn í leikskólaumhverfi.