Nafn nemanda: Thelma Rúnarsdóttir
Námsleið: Menntun allra og sérkennslufræði, M.Ed./ Kjörsvið: Fjölbreytileiki meðal barna og ungmenna
Leiðbeinandi: Anna Björk Sverrisdóttir
Sérfræðingur: Helga H. Helgadóttir
Ágrip:Þessi rannsókn fjallar um þróun námsumhverfis og skynvæns rýmis í námsveri fyrir skynsegin nemendur og hvernig slík þróun getur stutt við skynþarfir nemenda innan inngildandi menntakerfis. Tilgangur rannsóknarinnar er að efla þekkingu á skynjun og skynúrvinnslu og hvernig umhverfið hefur áhrif á hegðun og líðan nemenda. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvaða leiðir ég fer til að mæta skynþörfum nemenda minna en nemendur voru virkir þátttakendur í rannsóknarferlinu ásamt samstarfsfólki. Rannsóknin var framkvæmd sem starfendarannsókn á mínum starfsvettvangi í grunnskóla, skólaárið 2024-2026. Gagna var aflað með fjölbreyttum aðferðum, meðal annars vettvangsheimsóknum, ígrundandi samtölum við fagfólk, athugunum í starfi, rannsóknardagbók og með því að hlusta á raddir og upplifanir nemenda í daglegu skólastarfi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að aukinn skilningur á skynupplifun nemenda getur haft veruleg áhrif á hvernig kennarar túlka hegðun og bregðast við þörfum nemenda í skólaumhverfinu. Uppsetning skynvæns rýmis í námsveri og breytingar á skipulagi námsumhverfis skapaði aðstæður sem gáfu nemendum tækifæri til að ná jafnvægi á skynáreitum, taka hlé frá álagi og örva eða virkja skynkerfin sín eftir þörfum. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að líta á hegðun nemenda í ljósi skynupplifunar þeirra og að hlustað sé á raddir nemenda af virðingu og tekið sé mark á þeirra upplifun. Niðurstöður varpa ljósi á hvernig aðlögun umhverfis getur stuðlað að aukinni vellíðan, þátttöku og öryggi nemenda og styrkt inngildandi starfshætti í skólastarfi.