Nafn nemanda: Júdit Sophusdóttir
Námsleið: Hagnýt atferlisgreining, MS
Heiti verkefnis: Áhrif stuðningsáætlunar með hvatningarkerfi í Beanfee á skólasókn og líðan nemenda í 6. og 7.bekk með skólaforðun
Leiðbeinendur: Anna Lind G. Pétursdóttir og Lilja Ýr Halldórsdóttir
Ágrip/efni (drög): Beanfee er stafrænn hugbúnaður sem samþættir hvatningakerfi, sjálfsskráningu, endurgjöf og leikjavædda þætti. Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif einstaklingsmiðaðs stuðnings við skólaforðun á skólasókn, líðan og virkniþætti skólaforðunar hjá grunnskólanemendum. Stuðningurinn fól í sér virknimatsviðtöl, foreldrafræðslu og vöktun á líðan, auk einstaklingsmiðaðrar stuðningsáætlunar með Beanfee-hvatningarkerfi hjá þeim þátttakendum sem þörf höfðu fyrir frekari stuðning. Jafnframt voru reynsla þátttakenda, forráðamanna og umsjónarkennara af Beanfee og félagslegt réttmæti stuðningsins metin. Þátttakendur voru þrír drengir og ein stúlka, 12 til 13 ára, úr tveimur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu sem glímdu við skólaforðun. Notast var við margfalt grunnskeiðssnið yfir þátttakendur með grunnskeiði (A), foríhlutunarskeiði (B) og íhlutunarskeiði (C). Á B-skeiði fóru fram virknimatsviðtöl, foreldrafræðsla og vöktun á líðan en á C-skeiði var einstaklingsmiðuð stuðningsáætlun með Beanfee-hvatningarkerfi innleidd hjá þeim sem þörf höfðu fyrir frekari stuðning. Skólasókn var metin með skráningum í Mentor, líðan með daglegu mati í Beanfee, RCADS og RCADS-P matslistum og virkniþættir skólaforðunar með SRAS-R spurningalista. Niðurstöður sýndu aukna skólasókn hjá öllum þátttakendum og hlutfall daglegrar óútskýrðrar fjarveru lækkaði um 61,5%, 59,3%, 88,1% og 100%. Hjá einum þátttakanda varð jákvæð þróun í skólasókn og líðan á B-skeiði og var C-skeið því ekki innleitt. Daglegt líðanamat benti til bættrar líðanar hjá tveimur þátttakendum og stöðugrar eða lítillega breyttrar líðanar hjá hinum tveimur, en mat forráðamanna sýndi batnandi líðan hjá þremur. RCADS-heildarskor lækkaði hjá Páli úr 61 í 58, Bjarna úr 50 í 27 og Einari úr 27 í 20. Ylfa skoraði 103 við fyrri mælingu, en eftirmælingar RCADS, RCADS-P og SRAS-R bárust ekki frá henni og forráðamanni hennar. Niðurstöður SRAS-R bentu til minnkandi skólaforðunarhegðunar hjá þeim þremur þátttakendum sem luku mælingum. Félagslegt réttmæti stuðningsins var almennt metið hátt og Beanfee metið jákvætt. Niðurstöðurnar benda til þess að einstaklingsmiðaður stuðningur sem byggir á virknimati, foreldrafræðslu og vöktun á líðan, ásamt Beanfee-hvatningarkerfi þegar þörf er á frekari stuðningi, geti stutt við bætta skólasókn og líðan og dregið úr skólaforðunarhegðun. Frekari rannsóknir með stærri úrtökum eru þó nauðsynlegar til að staðfesta þessar niðurstöður.