Nafn nemanda: Sigrún Eva Sigurðardóttir
Námsleið: Menntun allra og sérkennslufræði, M.Ed. /Kjörsvið: Fjölbreytileiki meðal barna og ungmenna
Leiðbeinandi: Helga H. Helgadóttir
Meðleiðbeinandi: Edda Óskarsdóttir
Ágrip: Íslenskir skólar starfa eftir löggjöf og inngildandi menntastefnu sem leggur áherslur á velferð barna, lýðræði, félagslegt réttlæti og aðgengi allra að menntun; menntakerfi sem aðlagast þörfum nemenda og kemur til móts við fjölbreytileika þeirra með mismunandi kennsluaðferðum og nálgunum. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig viðhorf og skilningur foreldra barns með sérþarfir annars vegar og starfsfólks grunnskóla hins vegar birtast í samstarfi þeirra á milli með áherslu á inngildandi hugmyndafræði og menntun fyrir alla. Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun og er framkvæmd sem tilviksrannsókn þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við sjö þátttakendur í þverfaglegu teymi í kringum eitt barn á yngsta stigi grunnskóla. Notast var við markmiðsúrtak og voru gögn greind í ákveðin þemu. Niðurstöður sýna samhljóm meðal viðmælenda um mikilvægi snemmtæks stuðnings, jákvæð samskipti og gagnvirkt samstarf milli heimilis og skóla. Foreldrar og starfsfólk lýsa góðri samvinnu sem einkennist af trausti, opnu samtali og sameiginlegri ábyrgð á velferð barnsins. Sérstaklega var lögð áhersla á að mæta barninu á eigin forsendum, byggja á styrkleikum þess og skapa fyrirsjáanlegt og styðjandi námsumhverfi. Niðurstöður benda einnig til þess að stuðningsfulltrúar gegni lykilhlutverki í daglegu starfi en að samtal og tenging þeirra inn í teymisvinnu mætti vera markvissari. Þó viðmælendur séu almennt jákvæðir gagnvart inngildandi menntun og telji hana mikilvægan grunn að farsæld allra barna, benda þau jafnframt á áskoranir tengdar framkvæmd stefnunnar. Þetta beinist meðal annars að umræðu um aðgreiningu, fjölda nemenda og skort á samfellu milli stefnumótunar og veruleika í skólum. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að skýr sýn, faglegt samstarf og góðar vinnuaðferðir séu í forgrunni ef fylgja á menntastefnu um inngildandi menntun.