Frá stefnu til starfs: Greinargerð um mótun skólanámskrár

Nafn nemanda: Linda Hlín Hreiðarsdóttir
Námsleið: Leikskólakennarafræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Sara Margrét Ólafsdóttir.
Sérfræðingur: Anna Magnea Hreinsdóttir

Ágrip: Markmið þessa verkefnis er að leggja fræðilegan og faglegan grunn að mótun skólanámskrár fyrir leikskólann Sólheima. Verkefnið fjallar um hvernig þróa má skólanámskrá sem byggir á gildum og viðmiðum Aðalnámskrár leikskóla og tekur jafnframt mið af sérstöðu leikskólans og þeirri stefnu sem þar er unnið eftir. Sérstök áhersla er lögð á að greina hvernig fræðilegar hugmyndir, stefnumótun og daglegt leikskólastarf geta tengst í mótun heildstæðrar skólanámskrár. Í fræðilegum hluta verkefnisins er fjallað um lagalegan og stefnumótandi grunn leikskólastarfs með hliðsjón af lögum um leikskóla, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, farsældarlögum og Aðalnámskrá leikskóla. Þá er fjallað um hlutverk leikskólans sem mennta- og velferðarstofnunar og um mikilvægi leiks, námsumhverfis, lýðræðis, jafnréttis, læsis, sjálfbærni, heilsu og sköpunar í námi ungra barna. Jafnframt er fjallað um Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur sem mótar starf leikskólans Sólheima og hvernig hún tengist áherslum Aðalnámskrár leikskóla. Aðferðafræði verkefnisins byggir á fræðilegri greiningu á lögum, stefnumótun og rannsóknum á sviði leikskólafræði. Í verkefninu er jafnframt lögð áhersla á lýðræðislega þátttöku barna, starfsfólks og foreldra við mótun skólanámskrár í samræmi við áherslur Aðalnámskrár leikskóla. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að skólanámskrá sem byggir á skýrum fræðilegum forsendum, sameiginlegri sýn og virku samstarfi við börn, starfsfólk og foreldra styðji markvissa þróun leikskólastarfs og geti orðið raunhæft og lifandi verkfæri í daglegu starfi. Slík nálgun getur stuðlað að auknum gæðum í leikskólastarfi og eflt vellíðan, þátttöku og nám barna.