Gullþráðurinn í kennslu spjaldvefnaðar: Undirbúningur og reynsla við kennslu ævafornu handverksaðferðarinnar spjaldvefnaðar og útfærsla kennsluleiðbeininga

Nafn nemanda: Sóldís Sara Pétursdóttir
Námsleið: Kennsla list- og verkgreina, M.Ed. (Kjörsvið: Textíll og hönnun eftir B.Ed.)
Leiðbeinendur: Soffía Margrét Magnúsdóttir
Sérfræðingur: Rannveig Björk Þorkelsdóttir

Ágrip: Meistaraverkefnið er starfsendarannsókn byggir á kennslu spjaldvefnaðar í grunnskóla, viðtölum við sérfræðinga, gagnaöflun og tilraunum og þróun á kennslugögnum. Niðurstöður þessara aðferða eru síðan nýttar við gerð kennsluleiðbeininga fyrir spjaldvefnað.
Vefnaður er stór partur af íslenskum menningararfi. Því er mikilvægt að kenna fjölbreyttan vefnað í grunnskólum. Spjaldvefnaður er góð leið til að kenna vefnað þar sem þarf tiltölulega lítinn búnað miðað við hefðbundinn vefnað. Einnig er lögð áhersla á aðgengileg hráefni og einfalda uppsetningu.
Kveikjan að þessu verkefni er áhugi höfundar á spjaldvefnaði og að miðla þekkingu um spjaldvefnað áfram til komandi kynslóða. Því var gerð starfendarrannsókn þar sem þremur hópum í grunnskóla var kenndur spjaldvefnaður með áherslu á að þróa eigin fagmennsku, leikni og hæfni í kennslu ásamt því að bæta kennsluumgjörð. Einnig var rætt við sérfræðinga á sviði spjaldvefnaðar og kennslu, fornleifa- og miðaldafræði til að öðlast fleiri vinkla á viðfangsefninu til að spegla sig í. Gagnaöflun á netinu, tilraunir og þróun á efnivið og áhöldum til spjaldvefnaðar í kennslu s.s. gerð spjaldvefnaðarspjalda á mismunandi hátt og gerð spjaldofinna banda til að meta hentugleika garns fyrir spjaldvefnað var framkvæmd.
Niðurstöður leiddu í ljós að nýting starfendahringrásar nýtist vel við að bæta færni og fagmennsku í starfi, víkka sjóndeildarhring, finna kveikjur, og gera tilraunir til að þróa kennsluefni og áhöld fyrir spjaldvefnað og spjaldvefnaðarkennslu. Undirbúningur fyrir spjaldvefnað er tímafrekur og því er mikilvægt að vanda til verka í upphafi enda er erfitt að laga mistök eftir á. Niðurstöður þessarar fjölbreyttu starfendarannsókn gerðu það kleift að þróa kennsluleiðbeiningar fyrir kennara um spjaldvefnaðarkennslu í grunnskólum.
Það er von höfundar að þessi vinna verði til þess að spjaldvefnaðarkennsla verði aðgengileg og kennarar geti tekið upplýstar ákvarðanir um kennslu spjaldvefnaðar í grunnskólum.
Rannsóknarspurning: Að þróa einfaldar leiðbeiningar, kennslugögn og áhöld fyrir kennara í spjaldvefnaði með því að einfalda vinnuferli og finna ákjósanlegan og aðgengilegan efnivið fyrir spjaldvefnað.