Heimilislífið er rólegra: Upplifun feðra af nýju fyrirkomulagi í leikskólum Kópavogs

Nafn nemanda: Hafrún Lilja Jakobsdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA
Leiðbeinendur: Pála Margrét Gunnarsdóttir og Hrund Þórarins Ingudóttir

Ágrip: Rannsóknin fjallar um upplifun feðra af hinu svokallaða Kópavogsmódeli, nýju leikskólafyrirkomulagi sem innleitt var í Kópavogi árið 2023 og felur í sér gjaldfrjálsa sex tíma leikskóladvöl á dag. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig feður upplifðu þessar breytingar, hvaða áhrif þær höfðu á daglegt líf þeirra, föðurhlutverkið og tengsl þeirra við börn sín. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferð og fyrirbærafræðilegri nálgun. Tekin voru hálfopin viðtöl við átta feður sem voru í sambúð með barnsmóður sinni og ákváðu að stytta vistunartíma barna sinna eftir að nýja fyrirkomulagið tók gildi. Gögnin voru greind með þemagreiningu samkvæmt aðferð Braun og Clarke (2021), og niðurstöður túlkaðar með sjálfsákvörðunarkenningu Deci og Ryan (1985) og vistfræðikenningar Bronfenbrenner (2005) til hliðsjónar sem varpa ljósi á samspil einstaklings, fjölskyldu og samfélags.
Helstu niðurstöður sýna að feðurnir upplifðu breytingarnar sem tækifæri til að efla tengsl við börn sín og auka samverustundir. Þeir töldu börnin hressari og rólegri eftir styttri daga og lýstu aukinni þátttöku í umönnun, leik og daglegu skipulagi heimilisins. Um leið bentu þeir á áskoranir sem tengdust minni sveigjanleika, auknu álagi tengt skipulagningu og ólíkum aðstæðum fjölskyldna, einkum þegar vinnuaðstæður voru ósveigjanlegar eða stuðningsnet veikt.
Rannsóknin dregur þannig fram að breytingar á opinberri leikskólaþjónustu geta mótað daglegt fjölskyldulíf og skapað rými fyrir virkari þátttöku feðra í umönnun barna, þótt allt bendi til að áhrifin ráðist jafnframt af starfsumhverfi, stuðningsneti og aðstæðum hverrar fjölskyldu.