Nafn nemanda: Anna Mjöll Guðmundsdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA (30e)
Leiðbeinendur: Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir og Auður Magndís Auðardóttir
Ágrip: Til eru ólík fræðileg sjónarmið sem tengjast foreldrahlutverkinu enda hluti af gagnrýnni og vísindalegri hugsun að skoða viðfangsefni frá ólíkum sjónarhornum. Ákveðinnar togstreitu gætir á milli fræðilegra sjónarmiða um foreldrahlutverkið sem gagnlegt er að rýna en í þessari rannsókn er það gert með því að skoða tilgang og markmið en ekki síður reynslu og viðhorf kvennanna sem standa að hlaðvarpinu Meðvitaðir foreldrar virðing í uppeldi. Með rannsókninni vonast rannsakandi til þess að bæta við rannsóknir sem gerðar hafa verið á ákafri mæðrun og oftrú á uppeldi með því að greina viðhorf kvenna sem hafa verið að fjalla um foreldra- og uppeldishlutverkið á opinberum vettvangi á samfélagsmiðlum en það hefur ekki verið gert áður hér á landi. Með þessu vonast rannsakandi til að draga fram og kortleggja hvar helstu togstreitu gætir milli ólíkra fræðilegra sjónarmiða um foreldrahlutverkið á Íslandi í dag.