Nafn nemanda: Hildur Þóra Sigurðardóttir
Námsleið: Menntun framhaldsskólakennara, M.Ed. (Kjörsvið: Kyn og jafnrétti)
Leiðbeinandi: Íris Ellenberger
Sérfræðingur: Katrín Ólafsdóttir
Ágrip: Rannsóknin fjallar um hvernig samfélagsorðræða um áskoranir drengja í íslensku skólakerfi hefur áhrif á formlega og óformlega stefnumótun innan framhaldsskóla. Á undanförnum árum hefur umræða um áskoranir drengja í skólakerfinu orðið áberandi í fjölmiðlum og stjórnmálum, einkum í kjölfar PISA-niðurstaðna og skýrslu barna- og menntamálaráðuneytisins frá 2024. Þessi orðræða, sem byggir gjarnan á póstfeminískum og nýfrjálshyggjulegum hugmyndum um að jafnrétti sé þegar náð, hefur mótað skilning á stöðu kynjanna í skólum og dregið athyglina frá öðrum kerfislægum áskorunum sem snerta jaðarsetta hópa.
Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði og felur í sér viðtöl sex stjórnendur, þrjá námsráðgjafa og einn félagsmálafulltrúa í þremur framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Gögn voru greind með ígrundandi þemagreiningu samkvæmt Braun og Clarke (2022). Markmiðið var að kortleggja hvernig stjórnendur og stoðþjónusta þriggja framhaldsskóla skynjar og túlkar ríkjandi orðræðu um drengi og hvaða áhrif hún hefur á menningu skólanna.
Í ljósi þessa var leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: 1. Hvernig túlka viðmælendur mínir ríkjandi samfélagsorðræðu um drengi og hvaða áhrif telja þeir að hún hafi á skólastarf? 2. Hvernig lýsa viðmælendur mínir því að þessi orðræða birtist í menningu framhaldsskólanna? 3. Hvernig/Hvort er brugist við þessum áhrifum drengjaorðræðunnar?
Helstu niðurstöður samkvæmt orðum viðmælanda minna benda til þess að drengjaorðræða hafi áhrif á skólasamfélagið og umræðu innan skólanna og að jafnréttisstarf sé aðallega drifið áfram af starfsfólki fremur en nemendum. Jafnframt kemur fram að jaðarsettir hópar fá síður rými til að móta menningu skólans þar sem áhrifamiklir og háværir drengir stýra skólabraginum. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að framhaldsskólar beiti gagnrýninni nálgun á samfélagsumræðu og byggi stefnumótun á fjölbreyttum gögnum til að tryggja inngildandi námsumhverfi fyrir alla nemendur.