Móttaka nýrra starfsmanna í leikskólum: Leiðtogahlutverk, stuðningur og þróun hagnýtrar móttökuáætlunar

Nafn nemanda: Sara Guðjónsdóttir
Námsleið: Stjórnun menntastofnana, M.Ed.
Leiðbeinandi: Helgi Þorbjörn Svavarsson
Sérfræðingur: Svava Bjög Mörk

Ágrip: Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig móttaka og stuðningur starfsmanna birtist í leikskólum og hvernig þessir þættir tengjast leiðtogahlutverki stjórnenda og starfshelgun starfsmanna. Sérstök áhersla var lögð á að greina upplifun faglærðs og ófaglærðs starfsfólks af upphafi starfs og þeim stuðningi sem það fær í starfi. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferð þar sem stuðst er við opin viðtöl og megindleg gögn úr spurningalista til að varpa ljósi á rannsóknarefnið. Gögnin voru greind með þemagreiningu og lýsandi tölfræði til að draga fram helstu mynstur í upplifun starfsfólks. Niðurstöður benda til þess að almennt sé vel staðið að móttöku starfsmanna í leikskólum, sérstaklega hvað varðar félagslega þætti og samskipti innan starfsmannahóps. Hins vegar kemur fram að móttakan er oft óformleg og skortir skipulag og markvissa innleiðingu. Þá benda niðurstöður einnig til þess að handleiðsla og faglegur stuðningur sé í mörgum tilfellum takmarkaður, og að nýir starfsmenn reiði sig að miklu leyti á óformlegan stuðning frá samstarfsfólki. Jafnframt sýna niðurstöður að leiðtogahlutverk stjórnenda hefur veruleg áhrif á upplifun starfsfólks af starfi sínu, vinnustaðamenningu og þann stuðning sem það fær. Skýr forysta, aðgengi stjórnenda og markviss stuðningur virðist tengjast aukinni starfsánægju og sterkari tengslum starfsmanna við vinnustaðinn. Á grundvelli niðurstaðna var þróuð hagnýt afurð í formi handbókar fyrir stjórnendur leikskóla, með áherslu á móttöku og stuðning nýrra starfsmanna. Handbókin miðar að því að styrkja mannauðsstjórnun og stuðla að markvissari innleiðingu starfsmanna í starfi. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á mikilvægi þess að þróa skipulagt móttökuferli og efla handleiðslu innan leikskóla, sem getur haft jákvæð áhrif á starfshelgun, stöðugleika í starfsmannahópi og gæði leikskólastarfs.