Nafn nemanda: Tinna Björg Kristinsdóttir
Námsleið: Stjórnun menntastofnana, M.Ed.
Leiðbeinandi: Svava Björg Mörk
Sérfræðingur: Eva Harðardóttir
Ágrip: Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig félagslega sjálfbær skólamenning mótast í daglegu starfi leikskóla í tengslum við innleiðingu nýrrar hugmyndafræði. Félagsleg sjálfbærni vísar hér til þeirra aðstæðna og samskipta sem styðja við vellíðan, þátttöku, traust og sameiginlega ábyrgð innan skólasamfélagsins. Rannsóknin beindist að leikskólanum Árbæ, þar sem innleiðing Hjallastefnu er í virku ferli, með það að markmiði að greina hvaða þættir í innleiðingarferlinu styðja við slíka menningu og hvernig þeir tengjast upplifun starfsfólks af samstarfi, vellíðan og þátttöku. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við starfsfólk leikskólans.
Niðurstöðurnar benda til þess að félagslega sjálfbær skólamenning mótist í samspili samskipta, skipulags og starfshátta. Sérstaklega virðist skýr og fyrirsjáanleg umgjörð, sameiginleg ábyrgð og markviss leiðsögn skapa forsendur fyrir faglegu öryggi, aukinni starfsánægju og sterkari liðsheild. Þá virðist reglubundin ígrundun og virk þátttaka starfsfólks í þróun starfsins styðja við faglegt lærdómssamfélag og sameiginlega sýn á starfshætti leikskólans. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að breytingar á skipulagi, verkaskiptingu og náms- og starfsumhverfi hafi stuðlað að minni streitu, aukinni samvinnu og jákvæðari samskiptum innan leikskólans.
Þrátt fyrir að lykilhæfni í átt að sjálfbærni hafi ekki verið sett fram sem meðvitað viðmið í starfinu, birtist hún skýrt í starfsháttum og menningu leikskólans, meðal annars í formi gagnrýnnar og lausnamiðaðrar hugsunar og sameiginlegrar ábyrgðar. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að nálgast sjálfbærni sem menningarlegt og félagslegt ferli sem þróast í daglegu starfi og í samspili þeirra sem að því koma. Með því að varpa ljósi á þá þætti sem styðja við félagslega sjálfbæra skólamenningu, skapast þekking sem getur nýst sveitarfélögum og menntastofnunum í áframhaldandi þróun skólastarfs og sem innlegg í umræðu um áskoranir leikskólakerfisins hér á landi.