Reynsla leikskólakennara af teymisvinnu og lýðræðislegri forystu

Nafn nemanda: Aleksandra Bosnjak
Námsleið: Leikskólakennarafræði, M.Ed. Kjörsvið: Forysta og skólaþróun
Leiðbeinandi: Anna Magnea Hreinsdóttir
Sérfræðingur: Svava B. Mörk

Ágrip: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna reynslu og upplifun leikskólakennara af teymisvinnu og hlutverki forystu í því samhengi. Í ljósi þess að leikskólastarf byggir á nánu samstarfi starfsfólks var leitast við að varpa ljósi á hvernig teymisvinna birtist í daglegu starfi leikskóla, hvaða þættir styðja hana og hvaða áskoranir geta haft áhrif á þróun hennar. Sérstök áhersla var lögð á að greina hvernig forysta getur stutt við þróun teymisvinnu. Við rannsóknina var stuðst við eigindlega aðferðafræði þar sem hálfstöðluð viðtöl voru tekin við leikskólakennara og gögnin greind með þemagreiningu með það að markmiði að draga fram mynstur í reynslu og sýn þátttakenda. Í niðurstöðum kom fram að teymisvinna hefði veruleg áhrif á gæði leikskólastarfs og birtust þau meðal annars í aukinni faglegri þróun, eflingu sjálfræðis kennara og auknu öryggi í starfi. Einnig kom í ljós að traust, gagnkvæm virðing, skýrt skipulag og rammar væru lykilforsendur árangursríkrar teymisvinnu. Í því samhengi kom fram að forysta, sérstaklega þegar hún er dreifð og lýðræðisleg, gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja við teymisvinnu og skapa aðstæður sem auka þátttöku starfsfólks og styðja við þróun faglegs lærdómssamfélags. Jafnframt komu fram áskoranir sem tengdust þá helst tímaskorti og starfsmannaveltu. Jafnframt mátti sjá að árangursrík teymisvinna tengdist aukinni starfsánægju, sem getur stuðlað að bættum starfsskilyrðum og styrkt faglegt starfsumhverfi. Í heild benda niðurstöður til þess að markviss uppbygging teymisvinnu sé lykilþáttur í að efla gæði leikskólastarfs, á meðan forysta gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja við þá þróun. Rannsóknin veitir þannig mikilvægt framlag til þekkingar með því að varpa ljósi á samspil teymisvinnu og forystu í leikskólum og undirstrikar mikilvægi þess að skapa faglegt starfsumhverfi sem byggir á samstarfi, sameiginlegri ábyrgð og virkri þátttöku starfsfólks í takt við þær kröfur sem gerðar eru til leikskólastarfs í nútímasamfélagi.