Samskipti foreldra og leikskóla, áhersla á að styðja foreldra með foreldrafræðslu

Nafn nemanda: Karina Nielsen
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA
Leiðbeinandi: Hróbjartur Árnason

Ágrip: Daglegt líf margra fjölskyldna í nútímasamfélagi einkennist af miklum hraða og einnig af miklum kröfum. Foreldrar standa frammi fyrir áskorunum í uppeldishlutverkinu. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig leikskólakennarar geta veitt faglegan stuðning og fræðslu til foreldra. Því margir foreldrar eiga erfitt með að sækja sér námskeið, nýta jafnvel illa það efni sem stendur þeim til boða og svo er efnið á samfélagsmiðlunum misgagnleg. Þess vegna gegna leikskólakennarar því hlutverki að styðja við foreldra og veita þeim faglega ráðgjöf. Einnig með það markmið að efla samskipti foreldra og leikskóla og styðja við velferð barna.
Rannsóknin byggir á eigindleg aðferðafræði og var framkvæmd með því að taka viðtöl við átta leikskólakennara sem starfa á leikskólum á landsbyggðinni. Það verður varpað ljósi á hve mikilvægt er að leikskólakennarar gegni faglegu hlutverki í að styðja við foreldra í uppeldishlutverkinu sínu og að samvinna sem er byggð á gagnkvæmri virðingu og sameiginlegri sýn á velferð barnsins sé í forgangi í farsælu samstarfi á meðan leikskólaganga barnsins er. Þess vegna er gott að gefa sér tíma með barninu og einnig gefa sér tíma í að spjalla við leikskólakennara annað slagið. Því er gott að taka nýta dýrmæt tækifæri á að stuðla að góðum og jákvæðum tengslum og samstarfi milli foreldra og leikskóla. Niðurstöður rannsóknar sýna að leikskólakennarar í dag telja að það sé mikilvægt að skapa jákvæð og góð samskipti við foreldra. Traust og gagnkvæm virðing skiptir máli þegar foreldrar og leikskólakennarar þurfa að vinna saman daglega, sérstaklega þegar þau koma og sækja börnin, að þá er gott tækifæri að efla samstarfið. Leikskólakennararnir lýstu einnig þörf fyrir aukinni fræðslu og stuðning við foreldra, sérstaklega í ljósi þess að margir nýta sér ekki þau úrræði sem í boði eru vegna tímaskorts. Leikskólakennarar lýsa einnig áhuga á því að fá foreldrafræðslu inn í leikskóla og jafnvel senda foreldra á foreldrafræðslunámskeið.