Stuðningur við unglinga í sorg eftir foreldramissi: Tómstundamenntunarnámskeið og vegvísir fyrir leiðtoga

Nafn nemanda: Viktoría Ásgeirsdóttir
Námsleið: Tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Oddný Sturludóttir
Sérfræðingur: Jakob Frímann Þorsteinsson
Ágrip: Á Íslandi missa vel á annað hundrað börn foreldri sitt árlega. Unglingar sem hafa misst foreldri sitt standa frammi fyrir því að vinna úr erfiðu áfalli á viðkvæmu tímabili unglingsáranna. Þau þurfa að læra að takast á við ný hlutverk sem fylgja foreldramissi, samhliða því að vinna úr sorginni og upplifa sig mörg hver ein á báti og frábrugðin jafnöldrum sínum sem ekki hafa gengið í gegnum sömu lífsreynslu. Það er því mikilvægt að bjóða unglingum í sorg eftir foreldramissi upp á sérhæfð stuðningsúrræði þar sem þau fá tækifæri til að hitta jafningjahóp sem hefur gengið í gegnum sömu lífsreynslu. Markmið verkefnisins er að hanna námskeið fyrir unglinga í sorg, með nálgun tómstundafræðinnar. Við útfærslu þess var stuðst við sjálfsrýni, þar sem rannsakandi rýndi í eigin reynslu sem barn sem misst hafði foreldri sitt og einnig þátttöku sína sem sjálfboðaliði á námskeiðum fyrir börn og unglinga í sorg. Í fræðilegum hluta verkefnisins er rýnt í rannsóknir fræðimanna á þessu sviði hvað hafi reynst árangursríkt í starfi með börnum í sorg, hvaða afleiðingar áföll hafa í för með sér, og hve mikilvægur jafningjastuðningur er og hvernig hugmyndafræði og nálgun tómstundafræðinnar getur stutt við þennan viðkvæma hóp. Uppbygging námskeiðsins byggir á hugmyndum um tómstundamenntun, sem uppbyggilegan farveg til að nýta tómstundir sem stuðning í sorgarúrvinnslu unglinga. Niðurstöður benda til þess að tómstundamiðað námskeið geti skapað öruggt rými fyrir unglinga til að vinna með sorg sína á heilbrigðan máta. Þær undirstrika mikilvægi jafningjastuðnings í því ferli, þátt leiðtoga og mikilvægi tómstunda fyrir unglinga sem gengið hafa í gegnum erfiða lífsreynslu. Tómstundir og tómstundamenntun geta verið mikilvægur stuðningur sem og forvarnarstarf fyrir unglinga, sérstaklega þá sem eru í viðkvæmri stöðu. Tómstundamenntunarnámskeið getur ýtt undir jákvæðar og uppbyggilegar tómstundir, hjálpað unglingum í gegnum sorgarferlið með fjölbreyttri nálgun tómstundafræðanna og verið mikilvægur farvegur fyrir jafningjastuðning. Verkefnið er þýðingarmikið framlag fyrir fagfólk og félagasamtök sem vilja vinna á markvissan hátt með unglingum sem upplifa foreldramissi.