Höfundur: Kristjana Erlen Jóhannsdóttir
Leiðbeinandi: Edda Óskarsdóttir
Sérfræðingur: Svanborg R. Jónsdóttir
Ágrip/Efni:
Samþætting list- og verkgreina við aðrar námsgreinar gefur kennurum tækifæri til að þróa sig í starfi og opnar fyrir möguleikann á breyttum starfsháttum innan skóla, auk þess að ýta undir sköpun og fjölbreytni í kennsluháttum.
Tilgangur þessarar starfendarannsóknar er að efla samþættingu list- og verkgreina í almennu skólastarfi. Áherslan er einkum á tengingu hönnunar og smíði við aðrar list- og verkgreinar sem og við verkefni unnin í samvinnu við bekkjarkennara. Tilgangurinn var að auka gildi list- og verkgreina í öllu skólastarfinu og finna leiðir til að vinna að aukinni samþættingu þar sem kennarar í list- og verkgreinum tengdust meira inn í bekkjarstarfið. Rannsóknarspurningin sem ég leitaðist við að fá svör við er þessi: Hvernig get ég sem smíðakennari stuðlað að aukinni samþættingu á milli námsgreina í almennu skólastarfi með áherslu á list- og verkgreinar þar sem einkunnarorð skólans, – sköpun – seigla – samvinna er hvatinn og rauði þráðurinn?
Þessi starfendarannsókn var framkvæmd í Engjaskóla í Grafarvogi, en hann skilgreinir sig sem skapandi skóla og markmiðið var að bæta markvissri samþættingu námsgreina við þau skapandi vinnubrögð sem unnið er að í skólanum. Gagnasöfnun fór fram frá ágúst til desember 2024. Meðal rannsóknargagna eru viðtöl við tíu kennara sem tóku þátt í samþættingar vinnunni og niðurstöður úr þeim gefa til kynna að samþætting námsgreina skilar sér í dýpri skilningi, merkingarbærara námi og auknu flæði á milli námsgreina þar sem lærdómurinn var meiri en hann hefði annars orðið. Í rannsókninni kom einnig fram að kennurum fannst þessi samvinna bæði gagnleg og skemmtileg, fannst þeir vera meira eins og hluti af liði sem gekk saman í takt og komu með ýmsar hugmyndir og lausnir á því hvernig mögulegt yrði að þróa þessa vinnu áfram
Þessi rannsóknarvinna mín styrkti mig sem fagmannseskju og var valdeflandi fyrir mig að finna hvaða áhrif ég gat haft á samstarfsfólkið mitt og skólamenningu með því að framkvæma hana og tengjast fleiri námsgreinum en minni eigin. Það vilja allir halda áfram í þessari vinnu, þróa vinnubrögðin áfram og það er fyrir mér stærsti sigurinn.