Nafn nemanda: Sandra Dögg Björnsdóttir
Námsleið: Menntun allra og sérkennslufræði, M.Ed.
Leiðbeinandi: Anna-Lind B. Pétursdóttir
Meðleiðbeinandi: Ingibjörg Kaldalóns
Ágrip: Rannsókn þessi beinist að bekkjarstjórnun á yngsta stigi grunnskóla með notkun Spekt (e. PAX) og Hvatningarleiksins (e. Good Behavior Game) og byggir á þeirri forsendu að kennarar þurfi skýrar, gagnreyndar leiðir til að stuðla að vinnufriði, jákvæðum samskiptum og stuðningi við fjölbreyttan nemendahóp. Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu umsjónarkennara af því að fræðast um og prófa að nota gagnreyndar aðferðir Spekt og Hvatningarleikinn í tveimur myndrænum útgáfum í daglegu starfi, hvað snerti bekkjarstjórnun og kennslu, viðbrögð nemenda og hvað þeir töldu hafa áhrif á hæfni þeirra til að beita aðferðunum. Rannsóknin var eigindleg viðtalsrannsókn þar sem þátttakendur voru níu umsjónarkennarar í 1.-3. bekk í tveimur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, valdir með markvissu úrtaki. Gögnum var safnað með níu einstaklingsviðtölum sem fóru fram á þriggja daga tímabili í júní 2025, stóðu yfir í 55-100 mínútur og voru tekin upp með leyfi þátttakenda. Viðtölin voru afrituð orðrétt; þátttakendum gefin dulnefni og gögn greind með þemagreiningu samkvæmt sex þrepa ferli. Að hausti skólaársins, í aðdraganda gagnasöfnunar, höfðu kennarar sótt fjögur tveggja klukkustunda námskeið og fengið eftirfylgni, þar á meðal reglulegt mat á framkvæmd og leiðsögn. Niðurstöður benda til að viðmælendum hafi þótt notkun aðferða Spekt og Hvatningarleiksins hafa aukið faglegt sjálfstraust þeirra og gert þeim kleift að hafa skýrari væntingar, meiri fyrirsjáanleika og jákvæðari samskipti í bekkjarstjórnun. Einnig voru greindar áskoranir í beitingu aðferðanna sem varpa ljósi á breytur sem geta nýst til að upplýsa og styrkja innleiðingu í framtíðinni.