Þegar rýmið talar: Umhverfið sem þriðji kennarinn og málörvun í leikskóla

Nafn nemanda: Þórunn Þorkelsdóttir Diego
Námsleið: Leikskólakennarafræði, M.Ed./Kjörsvið: Mál og læsi
Leiðbeinandi: Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir
Sérfræðingur: Anna Gréta Guðmundsdóttir

Ágrip: Þessi rannsókn fjallar um innleiðingu Reggio Emilia hugmyndafræðinnar í íslensku leikskólastarfi og hvernig umhverfið sem „þriðji kennarinn“ getur stutt við og gert málörvun sýnilegri í daglegu starfi. Bakgrunnur rannsóknarinnar liggur í breytingum á starfsháttum leikskóla þar sem lögð er aukin áhersla á sameiginlega sýn, skráningar og skapandi námsumhverfi í samræmi við Aðalnámskrá leikskóla. Markmið rannsóknarinnar er annars vegar að skoða hvernig er hægt að endurvekja og efla innleiðingu Reggio Emilia hugmyndafræðinnar og hins vegar hvernig umhverfið getur stutt við sýnilega málörvun. Rannsóknin er starfendarannsókn sem byggir á eigindlegri nálgun. Gagna var aflað með fjölbreyttum hætti, meðal annars með vettvangsathugunum, fundum innan þróunarverkefnis fjögurra leikskóla, viðtölum við starfsfólk og skráningum í rannsóknardagbók. Gögnin voru greind með þemagreiningu þar sem leitast var við að draga fram mynstur frá upplifun starfsfólks og breytingum í starfi. Niðurstöður sýna að innleiðing hugmyndafræðinnar er margþætt ferli sem krefst tíma, samvinnu og sameiginlegs skilnings starfsfólks. Fram kom að skilningur starfsfólks er ólíkur og að skortur á tíma og fræðslu getur haft áhrif á innleiðinguna. Á sama tíma benda niðurstöður til jákvæðra breytinga í starfi, þar sem börn sýndu aukna þátttöku, sjálfstæði og sköpun. Einnig kom fram að börn tjá sig meira en áður, spyrja fleiri spurninga og taka virkari þátt í samskiptum. Umhverfið reyndist gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við málörvun, meðal annars í gegnum efnivið, skipulag rýma og sýnilegar skráningar sem urðu kveikja að samtölum og ígrundun. Rannsóknin bendir til þess að skipulag og markviss nýting umhverfisins geti stuðlað að auknum sýnileika málörvunar í leikskólastarfi og hefur því bæði fræðilegt og hagnýtt gildi fyrir þróun leikskóla í íslensku samhengi.