„Þú getur bara í alvöru fengið nýtt barn skiluru“: Upplifun foreldra og sýn kennara á Tengjumst í leik í Hveragerði.

Nafn nemanda: Thelma Rún Runólfsdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA
Leiðbeinandi: Lóa Guðrún Gísladóttir
Sérfræðingur: Ragný Þóra Guðjohnsen

Ágrip: Foreldrafærninámskeiðið Tengjumst í leik er þróað til að byggja upp styðjandi og tengslamiðað umhverfi fyrir börn. Sveitarfélög víða um land hafa innleitt námskeiðið og hefur það gefið góða raun, bæði hvað varðar ánægju foreldra, styrkingu á foreldrafærni þeirra og trú þeirra á eigin getu. Sveitarfélagið Hveragerði hóf nýlega innleiðingu námskeiðsins og bauð foreldrum barna í ákveðnum árgöngum þátttöku sér að kostnaðarlausu. Þrátt fyrir það hefur skráning verið dræm og miðar rannsókn þessi að því að varpa ljósi á viðhorf foreldra í Hveragerði til námskeiðsins og hvernig þeir telja unnt að ná til stærri hóps þátttakenda. Samhliða því er gerð grein fyrir upplifun kennara í fyrstu bekkjum grunnskólans í Hveragerði á þörf fyrir foreldrafræðslu. Með því er stefnt að því að styrkja innleiðingu námskeiðsins og stuðla að því að fleiri foreldrar nýti sér þann stuðning sem það veitir. Rannsóknin er eigindleg og felur í sér viðtöl við bæði foreldra og kennara. Niðurstöður sýna að þátttaka foreldra ræðst ekki einungis af framboði námskeiðsins heldur einnig af því hvernig það er kynnt, hversu sýnilegt það er innan skólasamfélagsins og að hve miklu leyti foreldrar upplifa það sem raunhæfan og gagnlegan stuðning í foreldrahlutverkinu. Foreldrar leggja áherslu á að kynning á námskeiðinu megi vera skýrari og markvissari, einkum með sterkari tengingu við skólastarf og þátttöku kennara í miðlun upplýsinga. Kennarar lýsa jafnframt skýrri þörf fyrir aukinn stuðning við foreldra í uppeldishlutverkinu. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að foreldrafræðsla sé ekki einungis í boði heldur að hún sé virkjuð sem hluti af skipulögðu samstarfi heimilis og skóla.