Nafn nemanda: Kolbrún Helga Gustavsdóttir
Námsleið: Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA.
Heiti verkefnis: „Við erum meiri foreldrar en makar“: Reynsla foreldra af áhrifum foreldrahlutverksins á parsambandið
Leiðbeinendur: Pála Margrét Gunnarsdóttir og Freydís J. Freysteinsdóttir
Ágrip/efni (drög): Markmið rannsóknarinnar var að dýpka skilning á reynslu foreldra af áhrifum foreldrahlutverksins á parsambandið. Rannsóknin var eigindleg og byggði á einstaklingsviðtölum við tíu foreldra, fimm pör sem áttu að minnsta kosti eitt barn á aldrinum þriggja til fimm ára. Viðtölin voru hálfopin og gögnin greind með þemagreiningu. Niðurstöðurnar sýndu að reynsla foreldra af áhrifum foreldrahlutverksins á parsambandið var margþætt. Foreldrahlutverkinu fylgdi aukin ábyrgð, þreyta og álag en jafnframt gleði, lífsfylling og aukinn tilgangur. Foreldrahlutverkið tók mikið rými í daglegu lífi og parsambandið færðist oft í bakgrunninn þar sem þarfir barnsins og fjölskyldunnar fengu forgang. Foreldrarnir lýstu jafnframt mikilvægi samvinnu, samskipta og gagnkvæms stuðnings og margir upplifðu sig og maka sinn sem liðsheild í foreldrahlutverkinu. Ábyrgð og verkefni skiptust þó ekki alltaf jafnt. Það virtist sem ábyrgð og verkefni hafi hvílt meira á mæðrum rannsóknarinnar heldur en feðrunum. Niðurstöðurnar sýndu að ábyrgð fólst ekki eingöngu í sýnilegum verkefnum heldur einnig í skipulagningu, utanumhaldi og hugrænni byrði daglegs fjölskyldulífs. Þrátt fyrir þær áskoranir sem foreldrahlutverkinu fylgdu lýstu foreldrarnir einnig því hvernig sameiginleg reynsla þeirra gæti styrkt tengsl og samheldni í parsambandinu. Niðurstöðurnar varpa ljósi á mikilvægi þess að huga að parsambandi foreldra samhliða stuðningi við þá í foreldrahlutverkinu. Aukinn skilningur á reynslu foreldra getur nýst fagaðilum á sviði foreldrafræðslu og uppeldisráðgjafar við fræðslu, ráðgjöf og stuðning við foreldra og fjölskyldur eftir barneignir.